Almennar fréttir

112 dagurinn haldinn hátíðlegur

21. febrúar 2020

Víðsvegar um landið kom fólk saman, m.a. á Egilsstöðum, Borgarnesi og á höfuðborgar

112 dagurinn var haldinn hátíðlegur víðs vegar um landið þann 11. febrúar sl.

Á Egilsstöðum komu viðbragðsaðilar saman og sýndu tæki og búnað á planinu við nytjamarkað Rauða krossins að Dynskógum 4. Boðið var upp á kaffi, súkkulaðimola og kleinur og Begga

\"Vidbragdsadilar-II\"formaður skellti í döðlugotterí fyrir gesti og gangandi, en fjölmargir lögðu leið sína á svæðið. Sjálfboðaliðar Rauða krossins sýndu bílinn Austra og neyðarvarnarkerru, dreifðu bæklingum og sýndu sig og sáu aðra.


Auk tækja Rauða krossins var lögreglan með lögreglubíl, HSA með sjúkrabíl, björgunarsveitin Hérað með snjóbíl, rússneskan úral og stóran björgunarsveitarbíl, Bbörgunarsveitin Jökull með tvo bíla og svo slökkviliðið með fjölda bíla og hjóla.

\"Borgarnes\"

Í Borgarnesi tók viðbragðsteymi Rauða krossins þátt í 112 deginum og kynnti Hjálparsímann 1717 í Hyrnutorgi. Almenn ánægja og þakklæti var með kynninguna, sem og með Hjálparsímann.

Á höfuðborgarsvæðinu voru viðbragðsaðilar með tæki sín til sýnis við flestar umferðaræðar og minntu á sig. Þá var haldin hefðbundin athöfn í björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð þar sem m.a. Skyndihjálparmaður ársins var útnefndur.