Almennar fréttir
Aðalfundur Rauða krossins við Eyjafjörð
25. febrúar 2026
Aðalfundur Eyjafjarðardeildar Rauða krossins verður haldinn fimmtudaginn 12. mars næstkomandi í húsnæði deildarinnar í Viðjulundi 2, Akureyri. Fundurinn hefst kl. 17.30.
Dagskrá fundarins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um starf deildarinnar á liðnu starfsári.
- Áritaður og skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.
- Framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár lagðar fram til kynningar.
- Kosning deildarstjórnar.
- Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra.
- Önnur mál.
Kjörgengir í stjórn og atkvæðarétt hafa allir félagar, 18 ára og eldri, sem greiddu félagsgjöld fyrir árslok 2025. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum með sjálfboðaliðasamning. Kosningar í allar trúnaðarstöður deildarinnar eru leynilegar sbr. 9. tl. 19. gr. laga Rauða krossins á Íslandi.
- Stjórn Eyjafjarðardeildar
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 24. apríl 2026Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum. „Fyrir börn sem þurfa hjálp,“ segja þau.
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.