Almennar fréttir
Bílstjóri óskast í sumarvinnu
03. maí 2019
Langar þig að vinna fyrir Rauða krossinn í sumar? Okkur vantar bílstjóra með aukin eða eldri ökuréttindi til að vinna með okkur í Fataflokkun Rauða krossins.
Langar þig að vinna fyrir Rauða krossinn í sumar? Okkur vantar bílstjóra með aukin eða eldri ökuréttindi til að vinna með okkur í Fataflokkun Rauða krossins. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið. Mikill kostur er ef viðkomandi gæti byrjað fljótlega og unnið fram í miðjan ágúst. Vinnutími er frá kl. 8-16 virka daga.
Helstu verkefni
- Akstur fyrir fataverkefnið
- Önnur tilfallandi verkefni í fataflokkun
Hæfniskröfur
- Aukin eða eldri ökuréttindi
- Stundvísi
- Liðsmaður í fjölbreyttu teymi
- Jákvætt viðmót og sveigjanleiki
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí næstkomandi. Ferilskrá og umsókn skal senda á starf hjá redcross.is. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Þorkell Ingi Ingimarsson verkstjóri í Fataverkefninu, keli hjá redcross.is eða í síma 6908866.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Sigurbjörg Rún tekin við stöðu deildarstjóra
Almennar fréttir 01. apríl 2026„Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir,“ segir Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.
Kvaddur eftir 30 ára starf fyrir Rauða krossinn
Almennar fréttir 30. mars 2026Gunnar Margeir Baldursson hefur látið af störfum varaformanns Suðurnesjadeildar Rauða krossins og var kvaddur með góðum þökkum á aðalfundi deildarinnar nýverið.
Ingibjörg ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins
Almennar fréttir 26. mars 2026„Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi enda á félagið, starfsfólk þess og sjálfboðaliðar, alveg sérstakan stað í hjarta mínu,“ segir Ingibjörg Elín Halldórsdóttir.