Almennar fréttir
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
24. apríl 2026
Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum.
„Þetta eru Anzac-kexkökur frá Ástralíu,“ segir Katrín Ragna Hansdóttir, níu ára, um leið og bekkjarbróðir hennar, Bergur Leó Zak Birkisson, réttir fram poka fullan af girnilegum smákökum. „Við bökuðum þetta sjálf,“ segja þau í kór og Davíð Karl Nardeu, sem einnig er mættur í höfuðstöðvar Rauða krossins, tekur undir. „Ég mæli með því að dýfa kökunum í kaffi,“ segir Bergur Leó sposkur þótt hann drekki vissulega ekki kaffi sjálfur.
Þau þrjú ásamt Katrínu Fjólu Mogensen, sem þurfti að fara á fimleikaæfingu og er því ekki með í för, eru komin til að afhenda fé sem þau söfnuðu fyrir Rauða krossinn með sölu á kökunum. Þau eru mjög áhugasöm um að útskýra sögu þessara kaka, að þær hafi verið bakaðar fyrir ástralska og nýsjálenska hermenn í nesti í fyrri heimsstyrjöldinni. „Við vorum að læra um heimsálfurnar í skólanum,“ segir Katrín. Þegar kom að Eyjaálfu hafi uppskrift að Anzac-kökunum meðal annars verið til umfjöllunar. Og þá hafi kviknað sú hugmynd að baka slíkar í stórum stíl og safna pening fyrir bágstödd börn.
Fyrsta mál á dagskrá var að auglýsa kökurnar til sölu og taka við pöntunum. Við það verkefni fengu þau aðstoð foreldra sinna sem settu inn auglýsingu á hverfisgrúppu á Facebook. Og ekki stóð á viðbrögðunum. Pantanirnar streymdu inn, bæði frá íbúum og starfsmönnum í skólanum. Næsta mál var að hittast heima hjá Katrínu Rögnu, binda á sig svunturnar og hefjast handa við baksturinn. Það gerðu þau um síðustu helgi.
„Við bökuðum 470 kökur,“ segir Davíð Karl. Og seinni partinn á laugardeginum, að afloknum bakstrinum, stukku þau upp á reiðhjólin með marga poka fulla af kökum og keyrðu þær út til þeirra sem höfðu lagt inn pantanir. Þegar upp var staðið höfðu þau safnað 40 þúsund krónum. „Við ákváðum að safna fyrir Rauða krossinn því það er skemmtilegt að gera eitthvað gott fyrir aðra,“ segir Bergur Leó og vinir hans taka heilshugar undir.
Rauði krossinn þakkar þeim Katrínu Rögnu, Davíð Karli, Bergi Leó og Kristínu Fjólu kærlega fyrir stuðninginn og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.
Sigurbjörg Rún tekin við stöðu deildarstjóra
Almennar fréttir 01. apríl 2026„Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir,“ segir Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.