Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

Bökuðu og seldu smákökur í þágu skyndihjálpar

Tombolukrakkar Mai2026 (1)

Hjalti Hrafn Hakonsson, Helga Ngo Björnsdóttir, Freyja Guðný Þórsdóttir, og Alexandra Lea Almarsdóttir færðu Rauða krossinum söfnunarfé sitt. Mynd: Davíð Þór

Fjögur börn úr skátahópnum Öndvegissúlum, sem heyrir undir skátafélagið Landnema í Reykjavík, komu glaðbeitt í höfuðstöðvar Rauða krossins nýverið. Í farteskinu höfðu þau fjármuni sem þau söfnuðu með sölu á smákökum. Kökurnar bökuðu þau sjálf í skátaheimilinu sínu í Hlíðunum. Að bakstri loknum gengu þau í hús í hverfinu og buðu kökurnar til sölu.

Þessu frábæra framtaki var vel tekið og söfnuðu þau 10.600 krónum sem þau afhentu Rauða krossinum. Þau vilja að féð fari í að efla skyndihjálp en Rauði krossinn hefur í fjölda ára verið leiðandi í kennslu skyndihjálpar á Íslandi.

Þau Hjalti Hrafn Hakonsson, Freyja Guðný Þórsdóttir, Helga Ngo Björnsdóttir og Alexandra Lea Almarsdóttir eru fædd árið 2014 og verða því öll tólf ára á árinu. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir stuðninginn og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.