Almennar fréttir
Fjögur frækin frændsystkini söfnuðu fyrir Rauða krossinn
30. desember 2025
Matthías Snorrason, Leó Bacchetti, Emma Högnadóttir og Óskar Snorrason fengu hugmynd og örkuðu þegar af stað til að safna pening í Vesturbænum fyrir Rauða krossinn.
„Við fengum þessa hugmynd og ákváðum strax að fara af stað,“ sögðu frændsystkinin Matthías Snorrason, Leó Bacchetti, Emma Högnadóttir og Óskar Snorrason er þau komu og afhentu Rauða krossinum fé sem þau höfðu safnað fyrir félagið.
Hugmyndin fólst í því að ganga í hús og safna flöskum og dósum sem síðan var skilað til endurvinnslu gegn gjaldi. Söfnunin fór fram í Vesturbænum og augljóslega tóku íbúar þar vel í hugmyndina góðu því þegar upp var staðið hafði frænsystkinunum tekist að safna 26 þúsund krónum.
Söfnunarféð vilja þau að verði nýtt til að rétta þeim sem þurfa hjálparhönd. Sérstaklega er þeim annt um að börnum á Gaza verði hjálpað.
Rauði krossinn þakkar þem Matthíasi, Leó, Emmu og Óskari kærlega fyrir stuðninginn og mun sjá til þess að féð nýtist þeim sem á þurfa að halda.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Langar þig að láta gott af þér leiða og taka þátt í fjölbreyttum og gefandi verkefnum á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.
Sigurbjörg Rún tekin við stöðu deildarstjóra
Almennar fréttir 01. apríl 2026„Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir,“ segir Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.
Kvaddur eftir 30 ára starf fyrir Rauða krossinn
Almennar fréttir 30. mars 2026Gunnar Margeir Baldursson hefur látið af störfum varaformanns Suðurnesjadeildar Rauða krossins og var kvaddur með góðum þökkum á aðalfundi deildarinnar nýverið.