Mynd: Rauði krossinn/Davíð Þór
Freyja Rúnarsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Rauða krossins á Íslandi og mun hún hefja störf nú í ágúst.
Freyja lauk MSc-gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands í febrúar 2020. Hún hóf störf hjá Rauða krossinum í ágúst 2021 sem verkefnastjóri á mannauðssviði, þar sem hún sinnti verkefnum tengdum farsóttarhúsum félagsins í COVID-faraldrinum. Þegar því verkefni lauk vorið 2022 réðst hún til Hrafnistu og hefur starfað þar undanfarin fjögur ár sem mannauðsráðgjafi.
„Ég er mjög spennt að snúa aftur til félagsins,“ segir Freyja. „Fyrri reynsla mín hjá Rauða krossinum gaf mér dýrmæta innsýn í þann mikla kraft sem býr í starfsfólki og sjálfboðaliðum félagsins. Ég hlakka til að styðja við þennan öfluga hóp og leggja mitt af mörkum til þeirra mikilvægu verkefna sem fram undan eru.“
Rauði krossinn býður Freyju velkomna til starfa á nýjan leik og þakkar fráfarandi mannauðsstjóra, Drífu Stefánsdóttur, kærlega fyrir gott samstarf á liðnum árum.



