Almennar fréttir
Gísli Rafn lætur af störfum
26. febrúar 2026
Stjórn Rauða krossins á Íslandi og Gísli Rafn Ólafsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins.
Arna Harðardóttir fjármálastjóri Rauða krossins tekur við verkefnum framkvæmdastjóra frá og með deginum í dag og þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn. Arna hefur unnið um árabil hjá félaginu og er þar öllum hnútum kunnug.
Stjórn leggur áherslu á að þessar breytingar hafi ekki áhrif á öll þau góðu og þörfu verkefni sem Rauði krossinn vinnur að í þágu samfélagsins.
„Við þökkum Gísla kærlega fyrir samstarfið og þá vinnu sem hann hefur lagt af mörkum í þágu félagsins fyrr og síðar og óskum honum velfarnaðar,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins.
„Rauði krossinn skiptir raunverulegu máli í íslensku samfélagi og það var lærdómsríkt að kynnast starfseminni úr stóli framkvæmdastjóra eftir að hafa verið sjálfboðaliði á árum áður,“ segir Gísli Rafn Ólafsson. „Hjá félaginu starfar samhentur og öflugur hópur starfsfólks, svo ekki sé talað um hundruð sjálfboðaliða, sem ég þakka kærlega fyrir samstarfið og óska alls hins besta í framtíðinni.“
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 24. apríl 2026Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum. „Fyrir börn sem þurfa hjálp,“ segja þau.
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.