Almennar fréttir

GJ Travel aðstoðar Rauða krossinn

04. nóvember 2019

GJ Travel hefur lagt Rauða krossinum lið allt frá árinu 1956 við móttöku einstaklinga með alþjóðlega vernd.

Í rúm 60 ár eða allt frá árinu 1956 hefur fyrirtækið Guðmundur Jónasson, nú þekkt sem GJ Travel, aðstoðað Rauða krossinn við móttöku flóttafólks með því að útvega rútubifreiðar sem sækja fólkið upp á Keflavíkurflugvöll þaðan sem þau eru keyrð til nýrra heimkynna sinna. 

\"Velkomnir-Ungverjar\"

Árið 1956 komu 52 einstaklingar, flest á aldrinum 18-20 ára, frá Ungverjalandi (sjá mynd) hingað til lands. Á þessum liðlega 60 árum hefur ýmislegt breyst, fjöldi fólks á flótta hefur farið vaxandi og hefur nú ekki verið meiri síðan á tímum seinni heimstyrjaldarinnar en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að um 71 milljón einstaklinga sé á flótta í heiminum, þar af eru 26 milljón þeirra undir 18 ára aldri.

Á þessu ári hafa íslensk stjórnvöld boðið 74 einstaklingum alþjóðlega vernd og koma þeir beint frá því nágrannalandi sem þeir flúðu til. Í slíkum móttökum skiptir gott samstarf höfuðmáli en að móttöku hvers hóps koma margir aðilar, þar ber helst að nefna félagsmálaráðuneytið, sveitarfélagið, Rauða krossinn, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og fleiri. 

Samstarf við fyrirtæki og einstaklinga er mikilvægur hlekkur í árangursríkri móttöku. Fyrir hönd Rauða krossins á Íslandi þökkum við Guðmundi Jónassyni kærlega fyrir að styrkja starf Rauða krossins hérlendis í móttöku flóttafólks, nú sem endranær, með því að sýna samfélagslega ábyrgð í verki. Í dag eru það afkomendur Guðmundar sem leggja hönd á plóg (sjá mynd). 

\"75349037_2439287482793638_3134063212421447680_n-1-\"Á myndinni eru systkinin Eðvarð Þór og Stefanía Sif Williamsbörn, en afi þeirra var Guðmundur Jónasson stofnandi GJ Travel.