Almennar fréttir
Héldu tombólu fyrir fátæk börn
24. október 2024

Sigrún Salka Árnadóttir, Ragna Brák Árnadóttir, Úlfrún Yrja Guðbjartsdóttir og Ylfa Rán Ingólfsdóttir héldu tombólu til að styrkja fátæk börn.
Vinkonurnar Sigrún Salka Árnadóttir, Ragna Brák Árnadóttir, Úlfrún Yrja Guðbjartsdóttir og Ylfa Rán Ingólfsdóttir héldu nýlega tombólu fyrir utan Krónuna á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði til að styrkja fátæk börn í Afríku.
Stelpurnar söfnuðu alls 11.500 krónum sem þær færðu Rauða krossinum.
Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra framlag í þágu mannúðar!

Daria ráðin deildarstjóri Rauða krossins í Múlasýslu

Seldu eigin hönnun til styrktar Rauða krossinum

Minningarorð um Eggert Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Rauða krossins

Brynhildur ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins