Almennar fréttir
Jólamerkimiðar Rauða krossins komnir út
27. nóvember 2025
Verkefni Rauða krossins á Íslandi í heila öld eru þemað á fallegum myndum sem prýða jólamerkimiða félagsins í ár. Miðunum hefur þegar verið dreift inn á heimili á höfuðborgarsvæðinu og þá verður hægt að nálgast víða um landið á næstu dögum.
Hefti með jólamerkimiðum Rauða krossins hafa nú dottið inn um lúgur og ofan í póstkassa hjá íbúum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig verður hægt að nálgast jólaheftið á þjónustustöðvum N1 víða um land sem og í Krambúðum, verslunum 10-11 og í flestum fatabúðum Rauða krossins. „Við hvetjum landsmenn til að skreyta jólapakkana sína með merkimiðunum, óháð því hvort þeir sjái sér fært að greiða fyrir þá til að styrkja starf félagsins,“ segir Nadía Ýr Emilsdóttir, verkefnastjóri á fjáröflunar- og kynningarsviði Rauða krossins.
Í ár eru jólamerkimiðarnir skreyttir myndum sem Strik Studio á veg og vanda að. Myndirnar voru teiknaðar við gerð auglýsingar sem fyrirtækið bjó til í tilefni af aldarafmæli Rauða krossins á Íslandi árið 2024. Á þeim má sjá úrval verkefna sem félagið hefur sinnt í gegnum tíðina – og sinnir jafnvel enn – með mannúðina að leiðarljósi.
„Með jólamerkmiðunum vill félagið minna á mannúðarstarf sitt í þeirri von að sem flestir sem fá þá í hendur dreifi þeim mikilvæga boðskap áfram til ástvina þinna,“ segir Nadía.
Svona greiðir þú fyrir jólamerkimiðana:
• Leggur inn á reikning 0342-26-272, kt. 530269-2649
• Greiðir valgreiðslukröfu í heimabanka (3.500 kr.)
• Greiðir í gegnum Aur (1235704000)
• Fylgir greiðsluleið í gegnum heimasíðu okkar
Rauði krossinn á Íslandi sinnir margvíslegu hjálpar- og mannúðarstarfi um allt land. Starf félagsins miðar að því að bæta íslenskt samfélag, en það hefur einnig viðamiklu hlutverki að gegna þegar vá ber að garði því Rauði krossinn er hluti af Almannavörnum ríkisins. Auk þess tekur félagið þátt í alþjóðlegu hjálparstarfi víða um heim.
Um 2.300 sjálfboðaliðar bera starfið uppi, en þeir starfa í anda grundvallarhugsjóna hreyfingarinnar um mannúð, hlutleysi og óhlutdrægni.
Rauði krossinn á Íslandi hefur starfað í þágu mannúðar og bættra lífsgæða í heila öld. Með því að greiða fyrir jólamerkimiðana styrkir þú innanlandsstarf Rauða krossins, en verkefni Rauða krossins snúa meðal annars að því að styðja þau sem upplifa einmanaleika, sorg og áhyggjur yfir hátíðina. Sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina hjá Hjálparsímanum 1717 og netspjallinu 1717.is allan sólarhringinn og allan ársins hring, líka á hátíðisdögum. Ekkert vandamál er of stórt eða lítið fyrir Hjálparsímann.
Þú getur stutt hjálpar- og mannúðarstarf Rauða krossins sem sjálfboðaliði, félagi eða með því að gerast Mannvinur.
Hér getur þú nálgast jólahefti Rauða krossins:
Krambúðin:
Akranes
Borgarnes
Búðakór
Búðardalur
Eggertsgata
Flúðir
Garðabær
Hjarðarhagi
Hófgerði, Kópavogi
Hólmavík
Hringbraut
Húsavík
Laugalækur
Laugarvatn
Lönguhlíð
Menntavegur, Reykjavík
Reykjahlíð
Selfoss
Skólavörðustígur
Tjarnabraut, Reykjanesbæ
Verslanir 10-11:
Austurstræti
Laugavegur
Einnig:
Iceland, Hafnarfirði
Extra, Barónstíg
Þjónustustöðvar N1:
Þjóðbraut, Akranesi
Brúartorg, Borgarnesi
Hafnarstræti, Ísafirði
Staðarskáli, Hrútafirði
Norðurlandsvegur, Blönduósi
Ártorg, Sauðárkróki
Hörgárbraut, Akureyri
Leiruvegur, Akureyri
Héðinsbraut, Húsavík
Kaupvangur, Egilsstöðum
Vesturbraut, Höfn í Hornafirði
Austurvegur, Hvolsvelli
Austurvegur, Selfossi
Breiðamörk, Hveragerði
Friðarhöfn, Vestmannaeyjum
Fatabúðir Rauða krossins í Reykjavík, á Selfossi, í Reykjanesbæ og á Akureyri.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 24. apríl 2026Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum. „Fyrir börn sem þurfa hjálp,“ segja þau.
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.