Almennar fréttir

Karlar í skúrum Vesturbyggð

16. maí 2019

Karlar í skúrum Vesturbyggð hefur nú verið starfrækt á Patreksfirði. Þetta er þriðji staðurinn á landinu þar sem Rauði krossinn stendur fyrir slíku verkefni.

Verkefni Barðastrandarsýsludeildar Karlar í skúrum hefur nú farið af stað á Patreksfirði og nefnist það Karlar í skúrum í Vesturbyggð, en til Vesturbyggðar teljast Bíldudalur, Patreksfjörður og sveitirnar þar í kring. Auk þess er Tálknafjörður á starfssvæði Rauða kross deildarinnar.

Þetta er því þriðji staðurinn á landinu þar sem Rauði krossinn stendur fyrir  Karlar í skúrum, en einnig er boðið upp á þessa aðstöðu í Breiðholti og Hafnarfirði.

Karlar í skúrum er verkefni Rauða krossins sem opið er fyrir alla karlmenn 18 ára og eldri, þar sem skapað er rými, í skúrum, til þess að hittast, spjalla, huga að áhugamálum sínum og vinna að sameiginlegum handverkefnum.

Hörður Sturluson, verkefnastjóri Karlar í skúrum segir að kynningarfundur verkefnisins sem haldinn var nýlega á Patreksfirði, hafi gengið vonum framar. Á fundinn mættu 5 karlar sem allir eru komnir inn í verkefnið. Tveir af þeim sitja nú í stjórn Karlar í skúrum Vesturbyggð og því einnig orðnir sjálfboðaliðar hjá Rauða krossinum í Barðastrandarsýslu. Ásamt þeim mætti Rebekka Hilmarsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar og Helga Gísladóttir formaður Rauða krossins í Barðastrandasýslu. Sveitarfélagið útvegar aðstöðuna endurgjaldslaust.

Hörður segist hafa fundið fyrir mikilli jákvæðni meðal karlanna, en þeir munu svo sjá um að gera aðstöðuna snotra og mun starfsemin líklegast byrja á fullu í haust. Þá segir Hörður að reynslan sýni að þegar húsnæðið fari að taka á sig mynd þá fjölgi mikið þátttakendum í verkefninu. 

\"Karlar-i-skurum_1558014907595\"