
Gunnar Margeir Baldursson fráfarandi varaformaður til vinstri og Herbert Eyjólfsson formaður Rauða krossins á Suðurnesjum til hægri.
Í þrjá áratugi hefur Rauði krossinn fengið að njóta krafta Gunnars Margeirs Baldurssonar. Leiðir hans og félagsins lágu fyrst saman er hann hóf störf í sjúkraflutningum hjá Grindavíkurdeild Rauða krossins árið 1996. Um svipað leyti hóf hann sjálfboðaliðastörf fyrir félagið sem hann hefur sinnt allar götur síðan í alls konar tilfallandi verkefnum.
Árið 2018 tók hann við formennsku í Grindavíkurdeildinni og frá sameiningu hennar og Suðurnesjadeildar árið 2020, undir nafni þeirrar síðarnefndu, hefur Gunnar verið varaformaður Rauða krossins á Suðurnesjum. Samhliða hefur hann af alúð og umhyggju sinnt sjálfboðaliðastarfi í Frú Ragnheiði, skaðaminnkandi úrræði Rauða krossins.
Gunnar lét af störfum varaformanns á aðalfundi Suðurnesjadeildar 11. mars síðastliðinn. Af því tilefni færði formaðurinn, Herbert Eyjólfsson, honum þakkarbréf og gómsæta kveðjugjöf.
„Við þökkum Gunnari fyrir gott og gefandi samstarf og óskum honum velfarnaðar í nýjum ævintýrum,“ segir Fanney Grétarsdóttir, deildarstjóri Suðurnesjadeildar Rauða krossins.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Seldu eigin hönnun til styrktar Rauða krossinum

Minningarorð um Eggert Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Rauða krossins

Brynhildur ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins

Fjall af flöskum breyttist í peninga fyrir Rauða krossinn