Alþjóðastarf
Lífsbjargandi mannúðaraðstoð íslenskra stjórnvalda og Rauða krossins til þolenda hungurs, ofbeldis og vopnaðra átaka í Afganistan og í Sómalíu
04. janúar 2022
Með stuðningi utanríkisráðuneytisins, Tombólubarna og Mannvina Rauða krossins hefur Rauði krossinn á Íslandi ákveðið að veita rúmum 70 milljónum króna til mannúðaraðgerða í Afganistan og í Sómalíu.
Stuðningur við mannúðarstarf Alþjóðaráðs Rauða krossins í Afganistan nemur um 28,5 milljónum króna sem nýtist vel í þeim erfiðu aðstæðum sem afganska þjóðin býr við. Auk þeirra erfiðleika sem hafa fylgt valdatöku Talibana ríkja í landinu miklir þurrkar og stór hluti þjóðarinnar býr við matarskort og hungur sem gæti aukist mikið verði ekki brugðist hratt við.
„Við fögnum heildstæðri nálgun íslenskra stjórnvalda en eins og kunnugt er buðu íslensk stjórnvöld tugum Afgana alþjóðlega vernd á Íslandi eftir valdatöku Talibana í ágúst síðastliðnum en að auki hafa stjórnvöld stutt mannúðarstarf Alþjóðaráðs Rauða krossins í landinu um tæpar 70 milljónir króna“ segir Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins. „Þessi stuðningur skiptir sköpum fyrir þá sem verst standa í Afganistan og sýnir hvernig íslensk stjórnvöld og Rauði krossinn geta tekið höndum saman og komið til móts við þarfir þeirra sem þjást vegna ofbeldis, vopnaðra átaka og hungurs“ segir Atli og bendir á að vegna ástandsins í Afganistan hafi mjög fá ef nokkur hjálparsamtök jafn greitt aðgengi að þolendum og geti veitt þeim mannúðaraðstoð eins og Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn.
Ástandið í Sómalíu er einnig mjög slæmt að sögn Atla, þótt það fái ekki mikla athygli í fjölmiðlum. Samkvæmt skýrslu Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC World Disaster Report 2020) er Sómalía það ríki heimsins sem er viðkvæmast fyrir loftslagsbreytingum sem koma ofan í viðkvæmt ástand í landinu vegna átaka sem þar hafa ríkt undanfarin ár. Áhrif loftslagsbreytinga má þegar finna og í strandbæjum getur fólk ekki lengur treyst á grunn lífsviðurværi, fiskveiðar og búfjárrækt.
Nærri þrjár milljónir Sómala búa við mikið fæðuóöryggi, auk þess að kljást við útbreiðslu erfiðra sjúkdóma á við kóleru, mislinga, malaríu og COVID-19. Sómalíski Rauði hálfmáninn, með stuðningi alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans, hefur brugðist við með beinum stuðningi við lífsviðurværi íbúa, heilbrigðisþjónustu og bætt aðgengi að vatni og hreinlæti auk þess að huga að vernd hinna viðkvæmustu í öllu starfi sínu. Stuðningur okkar við starfið nemur um 28.5 milljónum króna. Auk þess munum við verja um 15 milljónum í verkefni sómalíska Rauði hálfmánans sem snýr að aukinni viðbragðsgetu Rauða hálfmánans svo hann geti betur tekist á við áskoranirnar sem fylgja COVID-19 ofan á þær áskoranir sem fyrir voru.
Þess má geta að við erum ofboðslega stolt af því að Tombólubörn á Íslandi studdu jafnaldra sína í Sómalíu sem standa frammi fyrir hungri með framlögum sínum á árinu 2021 sem námu alls tæpum 95 þúsund krónum.
Rauði krossinn þakkar utanríkisráðuneytinu, Tombólubörnum og Mannvinum Rauða krossins fyrir stuðninginn.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Samstaða sómalskra kvenna drifkraftur umbóta
Alþjóðastarf 06. nóvember 2025„Þrátt fyrir takmörkuð úrræði deila sómalskar konur þeirri öflugu hugsjón að konur séu konum bestar,“ segir Natalia Herrera Eslava, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi. Starf sómalska Rauða hálfmánans, sem Rauði krossinn á Íslandi styrkir, er mikilvægara nú en nokkru sinni.
Auglýsing um sögu Rauða krossins tilnefnd til verðlauna
Almennar fréttir 05. nóvember 2025„Saga Rauða krossins á Íslandi er löng og litrík og við lögðum mikla vinnu í að fanga rétta tilfinningu,“ segir hönnunarstjóri Strik Studio um tilnefningu til verðlauna á einni stærstu hönnunarhátíð Evrópu.
Söfnunarfé frá almenningi til Mjanmar
Alþjóðastarf 04. nóvember 2025Fé sem safnaðist í neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi í kjölfar jarðskjálftanna í Mjanmar í lok mars mun nýtast Rauða krossinum þar í landi til áframhaldandi stuðnings við þolendur hamfaranna.