
Birgitte hélt ræðu á aldarafmæli Rauða krossins á Íslandi í desember 2024. Mynd: Rauði krossinn
Birgitte Bischoff Ebbesen, svæðisstjóri Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) í Evrópu, lést 3. október í kjölfar skyndilegra veikinda. Í tilkynningu frá IFRC segir að fráfall hennar sé mikið áfall fyrir alla sem hana þekktu. „Við sendum fjölskyldu hennar, vinum og samstarfsfólki um allan heim okkar innilegustu samúðarkveðjur,“ segir Ingibjörg Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.
Birgitte var dönsk og hafði starfað að mannúðarmálum í yfir tvo áratugi. Hún hóf störf hjá IFRC árið 2020 og stýrði upp frá því mörgum af stærstu og mikilvægustu aðgerðum sambandsins. Áður en hún gekk til liðs við IFRC hafði hún starfað sem sviðsstjóri á alþjóðasviði danska Rauða krossins og þar áður hjá dönsku flóttamannaaðstoðinni og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Vegna starfa sinna fór hún víða um heim og tók þátt í neyðaraðgerðum í kjölfar margvíslegra hamfara.
Birgitte var sérlegur gestur á hátíð í tilefni af 100 ára afmæli Rauða krossins á Íslandi í desember árið 2024. Margir núverandi og fyrrverandi starfsmenn og stjórnarmenn félagsins þekktu hana og hennar góðu störf.
Í tilkynningu frá IFRC er haft eftir Jagan Chapagain, framkvæmdastjóra IFRC, að Birgitte hafi verið einstakur leiðtogi sem hafði gott innsæi og óbilandi trú á mannúðarstarfi. „Hún bar djúpa umhyggju fyrir þeim sem voru í kringum hana og hún skapaði rými fyrir fjölskyldu og líf utan vinnu, virti alltaf og hvatti aðra til að gera slíkt hið sama. Birgitte verður minnst fyrir heilindi sín, góðvild og innblásturinn sem hún veitti þeim sem voru í kringum hana. Missirinn er mikill. Hennar verður sárt saknað.“



