Fara á efnissvæði
Alþjóðastarf

Vann að verndar- og aðgengismálum í Venesúela

Jordi 1

Jordi Cortes dvaldi nýverið í Venesúela í rúma tvo mánuði sem sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi. Aðalverkefni hans var að þjálfa starfsfólk og sjálfboðaliða á hamfarasvæðunum í að vernda þolendur jarðskjálftanna gegn kynferðislegri misneytingu, misnotkun og áreitni.

„Meginhlutverk mitt var einnig að hjálpa Rauða krossinum í Venesúela að veita örugga aðstoð sem hentar ólíkum hópum,“ segir Jordi. „Það felst meðal annars í því að tryggja að starfsfólk og sjálfboðaliðar á vettvangi kunni að koma auga á, fyrirbyggja og bregðast með viðeigandi hætti við kynferðislegri misneytingu, misnotkun og áreitni.“

Þúsundir enn í tjaldbúðum

Fimm mánuðum eftir tvo öfluga jarðskjálfta í Venesúela stendur fjöldi fólks enn frammi fyrir mörgum og stórum áskorunum. Staðfest er að 6.509 manns létust í skjálftunum og um 17 þúsund slösuðust. Hundruð bygginga hrundu og innviðir skemmdust mikið. Þúsundir hafast enn við í tjaldbúðum og tugir þúsunda reiða sig á mannúðarsamtök til að fá daglegar nauðsynjar.

Starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins í Venesúela hafa verið í framlínunni á hamfarasvæðunum með stuðningi frá 40 öðrum Rauða kross-félögum, þar á meðal því íslenska sem hefur sent tvo sendifulltrúa á svæðið.

Jordi 3

Jordi útbjó námskeið og kenndi starfsmönnum og sjálfboðaliðum Rauða krossins í Venesúela.

Öryggi og aðgengi í forgrunni

Engir tveir dagar voru eins hjá Jordi. Hann starfaði með ólíkum teymum á svæðinu til að tryggja að öryggi og vernd væru alltaf höfð í huga í öllum verkefnum.

„Við fórum saman á vettvang, skoðuðum úthlutunarstaði og mátum hvernig staðið var að málum,“ segir Jordi. Með því gátu teymin greint mögulegar hættur, fundið hindranir sem gætu komið í veg fyrir að fólk fengi aðstoð og leyst þær.

Sérstök áhersla var lögð á aðgengi fatlaðs fólks. „Ég skráði niður þær hindranir sem fatlað fólk mætir, bæði innan félagsins og í neyðaraðgerðunum sjálfum, og lagði fram tillögur til úrbóta,“ segir hann. Þá þróaði Jordi einnig sérsniðin námskeið fyrir ólíka hópa starfsfólks og sjálfboðaliða í stað þess að bjóða öllum upp á sömu almennu fræðsluna.

Árangur sem varir til framtíðar

„Það var einstaklega gefandi að vinna svona náið með samstarfsfólki mínu í Venesúela,“ segir Jordi. „Samstarfið gekk frábærlega og saman náðum við að gera öryggis- og verndarmálum hærra undir höfði.“

Hann segir mikilvægast að vinnan stöðvist ekki þegar neyðaraðgerðunum lýkur. „Rauði krossinn í Venesúela mun halda áfram að byggja á þessum grunni svo öryggi og vernd verði fastur liður í öllu daglegu starfi – samfélögum, starfsfólki og sjálfboðaliðum til heilla um ókomna tíð.“

Jordi 2

Sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða krossins í Venesúela sem og sendifulltrúar annarra landsfélaga hafa komið að mannúðaraðstoð hreyfingarinnar í Venesúela. Jordi er í rauðu vesti, þriðji frá hægri.