
Sigríður Björk Þormar kom snemma að þróun og útfærslu sálræns stuðnings í kjölfar hamfara og annarra áfalla. Mynd: Rauði krossinn/Davíð
Sigríður Björk Þormar, sálfræðingur og hjúkrunarfræðingur, var nýverið valin í sérhæft alþjóðlegt viðbragðsteymi á sviði geðheilbrigðis og sálfélagslegs stuðnings á vegum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans, IFRC. Viðbragðsteymið er skipað reynslumiklu fagfólki hvaðanæva úr heiminum sem unnið hefur hörðum höndum að því að innleiða og efla það sem stundum er kallað „sálfélagsleg aðstoð“ og hefur sýnt sig að vera ein af grunnstoðum allrar aðstoðar við fólk sem lent hefur í hremmingum.
„Þegar áföll eða hamfarir verða er ekki aðeins þörf á því að búa um líkamleg sár og koma fólki í skjól heldur þarf að hlúa að líðan fólks og veita því sálrænan stuðning,“ segir Sigríður. „Ég hef nú í fleiri ár tekið þátt í að afla og dýpka þekkingu á þessu sviði og miðla henni til sjálfboðaliða og starfsfólks hreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt frumkvöðlastarf og viðbragðsteymið er þarft og gott framhald af þeirri miklu vinnu.“

Rauða kross-hreyfingin hefur í áratugi leitt þjálfun fólks í skyndihjálp. Mynd: IFRC
Um miðjan tíunda áratug síðustu aldar kviknuðu hugmyndir innan Rauða kross-hreyfingarinnar um að þróa „sálræna skyndihjálp“ á grunni áratuga þekkingar á hefðbundinni skyndihjálp og öðrum stuðningi og aðstoð við fólk í erfiðum aðstæðum. Þetta hefur síðan verið kallað sálrænn stuðningur. Rauði krossinn í Danmörku átti frumkvæðið en félögin á Íslandi, í Svíþjóð og Finnlandi komu fljótt að málum. Sett var á laggirnar þekkingarsetur um sálrænan stuðning (e. Reference Center for Psychological support) og vinna hófst við að skoða hvernig hægt væri að nota reynsluna af skyndihjálp og uppbyggingu á kennslu hennar og yfirfæra yfir á sálrænan stuðning.
Sigríður starfar í dag sjálfstætt og hjá Háskólanum í Reykjavík en var á þessum tíma starfandi hjá Rauða krossinum. Vegna menntunar sinnar og brennandi áhuga á einmitt þessum málaflokki tók hún þátt í verkefninu fyrir hönd félagsins og lagði á næstu árum mikið af mörkum, í samvinnu við aðra sérfræðinga víða að úr heiminum, til þróunar á sálrænum stuðningi, sem stundum hefur verið kallaður áfallahjálp.
Alþjóðleg stefna
Síðan eru liðin mörg ár og sálrænn stuðningur við fólk sem orðið hefur fyrir áföllum af einhverju tagi, hvort sem er vegna stríðs, náttúruhamfara, ofbeldis eða slysa, er orðin býsna vel útfærð alþjóðleg stefna. Hún er viðurkennd um allan heim sem nauðsynlegur hluti af stuðningi við fólk, rétt eins og að búa um blæðandi sár eða brotin bein. Í dag kallast þessi nálgun Rauða kross-hreyfingarinnar geðheilbrigði og sálfélagslegur stuðningur (e. mental health and psychosocial support, skammstafað MHPSS). Hún er í stöðugri þróun því ný reynsla og þekking bætist enn við. Þekkingarsetrið er enn í Danmörku og gegnir lykilhlutverki í rannsóknum og miðlun fagþekkingar, m.a. með námskeiðum fyrir sendifulltrúa, sjálfboðaliða og starfsmenn Rauða kross-hreyfingarinnar.

Sigríður segist alltaf hafa haft áhuga á mannúðarstarfi og lengi haft vilja til að sérhæfa sig í áföllum. „Þess vegna var ég boðin og búin að koma að allri þessari þróunarvinnu sem og að fara á hamfara- og átakasvæði og nýta þekkingu mína og miðla til annarra.“
Bætir líðan og léttir annað hjálparstarf
Þegar hörmungar ríða yfir verður oft mikil ringulreið og skipulagning hjálparstarfs getur reynst flókin og margir aðilar koma að málum. Sigríður segir að það hafi stundum verið áskorun í fyrstu að halda á lofti mikilvægi sálræns stuðnings þar sem vinnubrögð voru gjarnan miðuð fyrst og fremst að því að bjarga lífi. „Sálrænn stuðningur bjargar einnig lífi og vekur von þegar fólk finnur sig í yfirþyrmandi aðstæðum,“ segir Sigríður.
Rannsóknir sýni að stuðningur skipti miklu máli fyrir þolendur áfalla af öllum toga, til skamms og lengri tíma. „Núna gerir alþjóða mannúðarsamfélagið sér grein fyrir því að þetta getur ekki aðeins bætt líðan þolenda heldur létt álagi af öðrum þáttum í hjálparstarfi,“ segir Sigríður. Hún tekur dæmi: „Þegar sett eru upp leiksvæði og skólar fyrir börn á hamfarasvæðum þá minnkar það álag á heilbrigðisþjónustu og gefur foreldrum nauðsynlegt svigrúm, í erfiðum aðstæðum, til að sinna brýnum verkefnum eins og að hlúa að slösuðum eða sjúkum fjölskyldumeðlimum. Einnig eykur þetta öryggi barna, sem geta verið fylgdarlaus vegna viðskilnaðar við foreldra eða forráðamenn, í kjölfar stærri atburða.“
Í neyðarástandi koma gjarnan mörg teymi ýmissa sérfræðinga að málum fyrir hönd Rauða krossins. Sérstök teymi sjá um heilbrigðisþjónustu, önnur um að koma upp hreinlætisaðstöðu og hreinu vatni og enn önnur um að útvega fólki skjól og mat. „Á vettvangi er lykilatriði að fólk og teymi geti unnið vel saman og hjálpast að,“ útskýrir Sigríður sem sjálf hefur oftsinnis farið á vettvang hamfara. „Enginn einn þáttur má verða útundan og mér finnst það hafa gefið mér dýpri innsýn og öflugri yfirsýn að hafa bæði hjúkrunarfræðina og sálfræðina með mér í veganesti.“
Til að tryggja að reynsluboltar væru í viðbragðsteymi í geðheilbrigði og sálfélagslegum stuðningi ákvað IFRC að kalla eftir umsóknum hjá landsfélögum frá áhugasömu fólki með mikla reynslu. Sigríður sótti um og við tók langt og strangt umsóknarferli þar sem miklar kröfur voru gerðar. „Það reyndi stundum á taugarnar að fara í gegnum þetta,“ segir Sigríður, en hún er þó ekki sú manngerð að skorast undan áskorunum og því hélt hún ótrauð áfram og var að endingu boðið að ganga til liðs við teymið. Nú getur hún átt von á því að vera kölluð út innan sólarhrings frá því beiðni um aðstoð berst Alþjóðasambandinu.
Hugað að skipulagi áfallahjálpar
En hver er saga sálræns stuðnings á Íslandi?
Í kjölfar snjóflóðanna á Súðavík og Flateyri árið 1995, þar sem Rauði krossinn kom að stuðningi við aðstandendur þeirra sem létust, var farið að huga að skipulagi áfallahjálpar hér á landi. Heilbrigðisstarfsfólk og viðbragðsaðilar fundu að þörf var á að þjálfa fólk í að veita slíka aðstoð.
„Við fórum að hugsa um þetta eins og skyndihjálpina,“ rifjar Sigríður upp en hún var á þessum tíma starfsmaður slysa- og bráðamóttöku Landspítalans sem tók beinan þátt í viðbragði. Það vantaði „sálrænt inngrip“.
Tveimur árum síðar var hún farin að vinna hjá Rauða krossinum og vinna við að byggja upp sálrænan stuðning hófst. „Flestir geta líklega stöðvað blæðingu ef þeir neyðast til, en kannski ekki eins vel og ef þeir hafa fengið þjálfun í skyndihjálp,“ útskýrir Sigríður. „Það sama gildir um sálrænan stuðning. Flestir geta talað við aðra manneskju sem orðið hefur fyrir áfalli, en hvernig þú gerir það skiptir máli. Með smá leiðsögn verður þú færari í því.“
Sálrænn stuðningur snýst einnig um að afstýra stigmögnun og auka sefjun (de-escalation). Þegar manneskja sýnir sem dæmi reiði á slysstað eða í neyðarástandi er reiðin oftast viðbragð við ótta eða sálrænum sársauka, bendir Sigríður á. „Hafi fólk hlotið þjálfun í sálrænum stuðningi mætir það einstaklingnum af samúð og skilningi frekar en að fara í vörn. Það fær fólk fljótt til að róast.“

Sigríður og aðrir sem eru í viðbragðsteymi IFRC í geðheilbrigði og sálfélagslegum stuðningi þurfa nú að vera reiðubúin að fara með skömmum fyrirvara á neyðarsvæði um allan heim. Mynd: Rauði krossinn/Davíð
Einn lykilþátta sálræns stuðnings er að byggja upp bjargráð einstaklingsins sem miða að því að styrkja seiglu. Þegar fólk verður fyrir miklum áföllum á hugurinn það til að lamast. Fólk snýst í hringi um sjálft sig og veit ekki hvað það á næst til bragðs að taka. Í slíkum aðstæðum þarf í fyrsta lagi að huga að grunnþörfum. Ertu búinn að borða? Ertu kaldur eða blautur? Hvar er bíllinn þinn? Eigum við að hringja í aðstandendur? „Þessi lausnamiðaða nálgun hjálpar fólki að ná fótfestu á ný,“ segir Sigríður.
Reiðubúin að stökkva til
Sigríður og aðrir sem eru í viðbragðsteymi IFRC í geðheilbrigði og sálfélagslegum stuðningi þurfa nú að vera reiðubúin að fara með skömmum fyrirvara á neyðarsvæði um allan heim.
Og hvað er það fyrsta sem þið munuð gera á vettvangi?
„Greina þarfir og hvaða bjargir og úrræði eru í boði,“ svarar Sigríður að bragði. „Svo að búa til aðgerðarplan og hlúa að börnum og viðkvæmum hópum. Það er einnig forgangsatriði að þjálfa viðbragðsaðila og sjálfboðaliða sem eru að störfum á vettvangi.“
En það þarf einnig að líta til lengri tíma. „Við vitum að sálrænn stuðningur getur flýtt fyrir því að einstaklingar nái fótfestu á ný og getur, ef rétt er að honum staðið og raunveruleg áhersla lögð á hann, hjálpað samfélögum að komast fyrr á réttan kjöl.“



