Fara á efnissvæði
Alþjóðastarf

„Við deilum sömu grunngildum“

Dr.Younisal Khatib Skrifstofa 4

Sigríður Stefánsdóttir formaður Rauða krossins á Íslandi og dr. Younis Al Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans, í höfuðstöðvum Rauða krossins í Efstaleiti i Reykjavík. Myndir: Davíð Þór/Rauði krossinn

Forseti palestínska Rauða hálfmánans, dr. Younis Al Khatib, er kominn til landsins og byrjaði heimsókn sína á að hitta starfsfólk Rauða krossins á Íslandi í höfuðstöðvum félagsins í Reykjavík.

„Rauði krossinn á Íslandi og palestínski Rauði hálfmáninn tilheyra sömu hreyfingu,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, er hún bauð dr. Al Khatib velkominn. „Við deilum sömu grunngildum, þeirra á meðal mannúðinni,“ bætti hún við og hélt áfram: „Hins vegar eru aðstæður okkar og starfsumhverfi gjörólík. Við berum mikla virðingu fyrir starfi ykkar og dáumst að hugrekki ykkar.“

Dr.Younisal Khatib Skrifstofa 6

Dr. Al Khatib færði Rauða krossinum á Íslandi handofið veggteppi frá Gaza og Sigriður (t.v.) formaður Rauða krossins færði honum handprjónað teppi úr íslenskri ull. Sólrún María Ólafsdóttir, teymisstjóri alþjóðateymis Rauða krossins á Íslandi, benti á líkindi með mynstri í báðum handverkunum.

Vernd þeirra sem vinna mannúðarstörf er dr. Al Khatib skiljanlega ofarlega í huga. Þrjátíu starfsmenn og sjálfboðaliðar félagsins hafa verið drepnir við störf sín á Gaza á síðustu þremur árum. „Rauði krossinn á Íslandi veit hvað það þýðir þegar við tölum um mannúð, virðingu og fólk í neyð, eða þegar við tölum um verndun mannúðarstarfsmanna,“ sagði Dr. Al Khatib. „ Við sem tilheyrum hreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans höfum lært um þessa hluti í þjálfun okkar, en að upplifa það á eigin skinni er eitthvað sem fær mann svo sannarlega til að gráta. Ég hef grátið mörgum sinnum á síðustu þremur árum þegar kollegar mínir hafa særst eða verið drepnir.“

Grunngildi hreyfingarinnar og lög landa hafa ekki nægt til að vernda mannúðarstarfsmenn. Mannúðarstarfsmenn séu í meiri hættu en áður og oftar skotmörk í vopnuðum átökum. Þá þróun verði að stöðva.

Hádegisfundur í Þjóðminjasafninu

Í hádeginu í dag, fimmtudag, verður dr. Al Khatib með fyrirlestur í sal Þjóðminjasafnsins. Þar mun hann fjalla um stöðu mannúðarmála í Palestínu og þær áskoranir sem einkenna starf palestínska Rauða hálfmánans. Landsnefnd um mannúðarrétt og Alþjóðamálastofnun standa að viðburðinum sem ber yfirskriftina Vernd og mannúð á átakasvæðum: Áskoranir og árangur í starfi palestínska Rauða hálfmánans og hefst hann kl. 12. Fyrirlesturinn er opinn öllum meðan húsrúm leyfir og verður sömuleiðis sendur út í beinu streymi.