Fara á efnissvæði
Alþjóðastarf

Yfir 300 milljónir til mannúðarstarfs á Gaza og í nágrannaríkjum

Jordan Rauði Hálfmáni Gaza Nov26

Rauði krossinn á Íslandi hefur frá árinu 2023 veitt yfir 300 milljónum króna til mannúðaraðstoðar í Palestínu og nágrannaríkjum. Stuðningurinn kemur annars vegar frá almenningi í gegnum m.a. neyðarsafnanir og mánaðarleg framlög Mannvina og hins vegar frá utanríkisráðuneytinu í samræmi við rammasamning þess við félagið.

Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans og Alþjóðaráð Rauða krossins hafa tekið við fjármununum og tryggt að aðstoð berist hratt og örugglega til þeirra sem mest hafa þurft á að halda. Einnig hefur hluti stuðningsins farið beint til palestínska Rauða hálfmánans.

Vertu Mannvinur

Skipta má stuðningnum í þrennt: Yfir 160 milljónir króna hafa farið til verkefna Alþjóðaráðsins, yfir 84 milljónir króna til palestínska Rauða hálfmánans og um 60 milljónir til neyðaraðstoðar í Líbanon og nágrannaríkjum.

Gaza FH Skurðstofa1 (1)

Skurðaðgerð framkvæmd við erfiðar aðstæður í vettvangssjúkrahúsi Rauða krossins í Rafah á Gaza. Rauði krossinn á Íslandi styður rekstur sjúkrahússins. Mynd: ICRC

„Þegar kemur að því að leggja mannúðinni lið lætur fólk á Íslandi sitt svo sannarlega ekki eftir liggja,“ segir Ingibjörg Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Rauði krossinn er stórhuga í sinni aðstoð og nýtur einstakrar hjartahlýju landsmanna í því verkefni sínu og dyggilegs stuðnings utanríkisráðuneytisins. Takk, Mannvinir Rauða krossins. Takk, kæru börn, sem hélduð tombólur og góðgerðardaga til styrktar Rauða krossinum og takk öll sem hélduð styrktartónleika og aðrar uppákomur. Takk og aftur takk fyrir að vera með mannúðinni í liði.“

Lífsnauðsynleg læknisþjónusta á Gaza

Á árunum 2023 til 2026 hefur Rauði krossinn á Íslandi lagt um 160 milljónir króna til starfsemi Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) fyrir botni Miðjarðarhafs. Að stærstum hluta hefur fjármagnið runnið til vettvangssjúkrahúss í borginni Rafah á Gaza sem 16 landsfélög Rauða krossins styðja en þangað hefur Rauði krossinn á Íslandi einnig sent fjóra íslenska sendifulltrúa til starfa.

Frá því að sjúkrahúsið var opnað vorið 2024 hefur það m.a. veitt þúsundum særðra, slasaðra og veikra lífsnauðsynlega bráða- og skurðlæknaþjónustu við erfiðustu mögulegu aðstæður. Þar er sömuleiðis boðin endurhæfing og sálfélagslegur stuðningur sem og fæðingarþjónusta og mæðravernd.

Gaza Nóvember26 PRCS

Sjálfboðaliði frá palestínska Rauða hálfmánanum lítur til með fjölskyldu á Gaza sem hefst við í tjaldi líkt og bróðurpartur íbúa svæðisins. Mynd: PRCS

Sjúkraflutningar og áfallahjálp

Frá árinu 2023 hefur Rauði krossinn á Íslandi veitt yfir 84 milljónum króna til palestínska Rauða hálfmánans (PRCS). Starfsfólk og sjálfboðaliðar félagsins sinna sjúkraflutningum í neyð, sjúkrahúsþjónustu, heilsugæslu og sálrænum stuðningi á Gaza og Vesturbakkanum, auk þess að reka heilbrigðis- og félagsþjónustu í flóttamannabúðum Palestínumanna í Líbanon og víðar. Þrátt fyrir viðvarandi átök, mikinn skort og hindranir á flutningi hjálpargagna heldur teymið ótrautt áfram að styðja fjölskyldur sem hafa margar hverjar misst allt sitt.

Neyðarviðbrögð í Líbanon og nágrannaríkjum

Átökin og afleiðingar þeirra hafa teygt sig til nágrannaríkjanna á svæðinu. Rauði krossinn á Íslandi hefur veitt um 30 milljónum króna til neyðaraðstoðar í Líbanon, en Rauði krossinn í Líbanon bregst við átökum með því að senda sjúkrateymi á vettvang til að hlúa að særðum, setja á laggirnar færanlegar heilsugæslur, bjóða blóðgjafaþjónustu og útvega fjölskyldum á flótta húsaskjól og nauðsynjar.

Gaza Egypski Rh Nov26 Ifrc

Egypski Rauði hálfmáninn tekur á móti slösuðum, særðum og veikum frá Gaza sem fá læknismeðferð í Egyptalandi. Mynd: IFRC

Þá lagði Rauði krossinn á Íslandi einnig tæpar 30 milljónir króna til svæðisbundinnar neyðaraðstoðar Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) í Suðvestur-Asíu. Það framlag styður við starf Rauða hálfmánans í Egyptalandi og Jórdaníu, sem taka á móti og samræma hjálpargögn fyrir fólkið á Gaza og styðja við sjúklinga sem fluttir hafa verið þaðan ásamt fjölskyldum þeirra. Um gríðarlega flókið og erfitt verkefni er að ræða enda allur innflutningur hjálpargagna til Gaza gríðarlega miklum takmörkunum háður og sömuleiðis erfitt að koma fólki út af svæðinu. Landsfélögin hafa lyft grettistaki við að byggja upp birgðageymslur, halda utan um allar vörur sem berast, og reyna að koma í veg fyrir að matvæli sem eiga að fara til fólksins á Gaza skemmist handan landamæranna vegna tafa á afhendingu.

Stuðningur í neyð

Með því að leggja fjárframlög frá almenningi og stjórnvöldum saman við öflugt net sjálfboðaliða og sérfræðinga Rauða kross-hreyfingarinnar á vettvangi tryggir Rauði krossinn á Íslandi að aðstoð skili sér beint til fólks í bráðri neyð og byggi um leið upp getu heimamanna til að takast á við áföll.