
Jordi Cortes, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er kominn til starfa í Venesúela. Þar mun hann sinna verkefnum á sviði forvarna gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun á áhrifasvæðum jarðskjálftanna sem urðu í lok júní. Enn er mikið uppbyggingarstarf óunnið í kjölfar hamfaranna og Rauða kross-hreyfingin, með landsfélag sitt í Venesúela í fararbroddi, leiðir margvíslegt mannúðarstarf á vettvangi.
Karla Johnson fór til Venesúela fyrir hönd Rauða krossins á Íslandi fljótlega eftir að skjálftarnir urðu og er Jordi því annar sendifulltrúi félagsins á vettvangi. Sendiferðir þeirra beggja eru styrktar af utanríkisráðuneytinu.
Jordi hefur mikla reynslu af sendifulltrúastörfum fyrir hönd Rauða krossins. Leiðir hans og félagsins lágu fyrst saman er hann gerðist sjálfboðaliði fyrir félagið á Íslandi. Í þeim störfum tók hann m.a. þátt í verkefnum sem styðja flóttafólk með ýmsum hætti. Í framhaldinu réði hann sig til starfa hjá hreyfingunni.
Samhliða þeim störfum lauk Jordi BA-gráðu í alþjóðlegum þróunarfræðum við Háskólann í Westminster og síðar meistaragráðu frá London School of Economics and Political Science (LSE) með áherslu á mannúðarmál í neyðarástandi.

Teymi frá Rauða krossinum í Venesúela á vettvangi skjálftanna.
„Í störfum mínum fyrir Rauða krossinn á Íslandi kynntist ég fyrst þeirri aðferðafræði að nálgast öll verkefni með jafnrétti, vernd og inngildingu að leiðarljósi,“ segir Jordi. Sú nálgun hafi orðið að áhersluþætti í hans störfum, fyrst á Íslandi og svo í verkefnum á vegum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC). „Síðan þá hef ég farið víða um lönd þar sem mannúðaraðstoðar er þörf.“
Hann hefur m.a. starfað í Ungverjalandi og Moldóvu í kjölfar fólksflóttans undan vopnuðum átökum í Úkraínu og um borð í björgunarskipinu Ocean Viking við að veita flóttafólki sem bjargað var úr Miðjarðarhafi sálrænan stuðning, vernd og aðstoð við að sameina fjölskyldur. Þá tók hann einnig þátt í mannúðarstarfi í kjölfar mikilla flóða- og skriðufalla í Brasilíu og á Jamaíku vegna fellibylsins Melissu sem gekk yfir í fyrra. „Mitt hlutverk í Venesúela er að samræma forvarnaraðgerðir gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun og styrkja landsfélag Rauða krossins hér í því verkefni að skapa öruggt umhverfi fyrir starfsfólk, sjálfboðaliða og samfélögin sem þau starfa í.“
Jordi mun starfa í Venesúela þar til um miðjan október.
Rauði krossinn veitir margþætta aðstoð
Tveir öflugir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, urðu í norðurhluta Venesúela 24. júní. Hamfarirnar ollu gríðarlegri eyðileggingu og þúsundir misstu heimili sín. Staðfest er að á sjöunda þúsund létust og margra er enn saknað.
Sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins í Venesúela hafa staðið í ströngu allt frá því að skjálftarnir riðu yfir og verið til staðar og aðstoðað fólk við flóknar og oft erfiðar aðstæður. Önnur landsfélög og Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans hafa sent margþætta aðstoð, jafnt búnað og birgðir, svo sem tjöld og mat, sem og mannskap.
Á mörgum þeim svæðum sem verst urðu úti hefst fólk enn við í tjaldbúðum og þúsundir þurfa enn á mannúðaraðstoð að halda. Í kjölfar fyrstu hjálpar í hamförum hefst endurheimt, m.a. með sálfélagslegum stuðningi sjálfboðaliða Rauða krossins í Venesúela.



