
Eggert Ásgeirsson, lengst til hægri, á ferð um Swaziland árið 1979. Rauði krossinn á Íslandi var þá að taka þátt í að byggja upp hreyfinguna í sunnanverðri Afríku og þjálfa heimafólk til sérhæfðra starfa. Mynd úr safni Rauða krossins.
„Að leiðarlokum kveðjum við hjá Rauða krossinum á Íslandi Eggert Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins, af virðingu og með þakklæti,“ skrifar Ingibjörg Halldórsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri félagsins, í minningarorðum um Eggert sem lést 3. september, 97 ára að aldri. Útför hans fer fram í dag, föstudaginn 18. september.
Eggert var ráðinn framkvæmdastjóri Rauða krossins árið 1969 og gegndi því starfi í ríflega áratug eða til ársins 1981. Þetta voru sannkallaðir umbrotatímar í sögu þjóðarinnar. Þegar eldgos hófst í Heimaey árið 1973 mæddi mikið á forystu Rauða krossins. Undir stjórn Eggerts og samstarfsfólks hans var ráðist í umfangsmesta og mest krefjandi hjálparstarf félagsins sem unnið hafði verið hér á landi. Rauði krossinn hafði m.a. veg og vanda af móttöku og skráningu fólks úr Eyjum og miðlun húsnæðis og fjárhagslegrar aðstoðar. Þessi mikla vinna bar vitni um metnað, útsjónarsemi og nærgætni í starfi félagsins með Eggert í brúnni.
Segja má að sú reynsla sem skapaðist í Vestmannaeyjagosinu hafi lagt grunninn að neyðarvörnum Rauða krossins sem í dag gegna veigamiklu hlutverki í almannavörnum landsins, m.a. með opnun fjöldahjálparstöðva þegar eitthvað bjátar á.
Á tímum Eggerts í stóli framkvæmdastjóra var einnig hugað að eindregnari þátttöku Rauða krossins á Íslandi í neyðarviðbrögðum erlendis og m.a. tekið þátt í stórri söfnun fyrir bágstadda í sunnanveðri Afríku ásamt Rauða kross-félögum á hinum Norðurlöndunum. Rauði krossinn á Íslandi tók á þessum tíma þátt í að byggja upp hreyfinguna í sunnanverðri Afríku og þjálfa heimafólk til sérhæfðra starfa.
Árið 1979 ákvað ríkisstjórnin að fela Rauða krossinum að undirbúa móttöku flóttafólks frá Víetnam. Fulltrúum félagsins var falið að fara til eyjarinnar Pulau-Bidong í Suður-Kínahafi til að velja flóttafólkið í flóttamannabúðum þar og stjórna heimförinni.
Framkvæmdastjórinn Eggert tók sérstaklega fram í blaðaviðtali að varast skyldi vítin við val á flóttamönnum. Ekki mætti sundra fjölskyldum, eins og gert hefði verið í mörgum löndum, né fótumtroða sjálfsákvörðunarrétt fólksins. Og ekki einblína á að velja ungt fólk og menntað þannig að til dæmis aldraðir og sjúkir yrðu útundan.
„Eggert skilur eftir sig djúp spor í sögu mannúðarmála á Íslandi enda brann hann fyrir málstað þeirra sem á hjálp þurftu að halda,“ skrifar Ingibjörg í minningarorðum sínum. „Hann sýndi í verki hvað hreyfingin okkar stendur fyrir þegar mest á reynir: að mæta fólki í neyð þar sem það er statt af mannúð, hlutleysi og virðingu.“
Rauði krossinn á Íslandi sendir aðstandendum og öðrum ástvinum Eggerts innilegar samúðarkveðjur.



