Almennar fréttir
Nýir talsmenn barna á Alþingi
22. nóvember 2022
Undirritun yfirlýsingar talsmanna barna á Alþingi fór fram í Alþingishúsinu í dag. Þingmenn léku sér saman og hétu því að tala fyrir hagsmunum barna.

Þingmenn úr öllum stjórnmálaflokkum gerðust talsmenn barna á Alþingi í dag. Þeir undirrituðu yfirlýsingu þess efnis að þeir skuldbindi sig til að hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum á þinginu, leitist við að tileinka sér barnvæn sjónarmið og hafa hagsmuni barna að leiðarljósi.
Þáttur í undirbúningi fyrir hlutverkið var að sækja fræðslu barna og ungmenna um mannréttindi barna og Barnasáttmálann og um það hvernig hann getur nýst við ákvarðanatöku og stefnumótun.
“Ungmennin spurðu okkur krefjandi spurninga um málefnin sem skipta þau máli. Um geðheilbrigði, loftslagsmál, stafrænt ofbeldi og lýðræði,” segir Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins og nýr talsmaður barna á Alþingi. Á viðburðinum fyrr í dag lýsti Hafdís fræðslunni sem þingmenn fengu og sagði ungmennin hafi talað skýrt um að þegar kemur að málefnum barna ættu fullorðin að hlusta meira og tala minna.
Þetta er í fjórða sinn sem talsmenn barna á Alþingi eru skipaðir og er verkefnið samstarf Barnaréttindavaktarinnar, sem er vettvangur níu félagasamtaka sem vinna að réttindum barna á Íslandi. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur áður verið í hlutverki talsmanns og brýndi hún þingmennina til þess að beita sér fyrir réttindum barna og taka sér til fyrirmyndar fyrrum talsmann Pál Val Björnsson, sem hlaut Barnaréttindaverðlaun ungmennaráða árið 2016 fyrir störf sín.
Á viðburðinum var þingmönnum boðið að leika sér saman í Lego. Hver þingmaður valdi sér lego-kall og kubba til áminningar um hlutverkið sem hann tekur nú að sér út kjörtímabilið.
Hver stjórnmálaflokkur tilnefnir einn aðalmann og einn varamann. Eftirtaldir þingmenn gerast í dag talsmenn barna á yfirstandandi þingi:
Flokkur fólksins
Aðalmaður: Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Varamaður: Guðmundur Ingi Kristinsson
Framsóknarflokkur
Aðalmaður: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
Varamaður: Ágúst Bjarni Garðarsson
Miðflokkur
Aðalmaður: Bergþór Ólason
Varamaður: Anna Kolbrún Árnadóttir
Píratar
Aðalmaður: Gísli Rafn Ólafsson
Varamaður: Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
Samfylking
Aðalmaður: Oddný G. Harðardóttir
Varamaður: Jóhann Páll Jóhannsson
Sjálfstæðisflokkur
Aðalmaður: Diljá Mist Einarsdóttir
Varamaður: Vilhjálmur Árnason
Viðreisn
Aðalmaður: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Varamaður: Ekki verið tilnefndur
Vinstri Græn
Aðalmaður: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Varamaður: Orri Páll Jóhannsson
Barnaréttindavaktin stendur að verkefninu talsmenn barna á Alþingi til að tryggja börnum málsvara á Alþingi.
Barnaréttindavaktin er óformlegur samstarfsvettvangur félagasamtaka sem öll starfa að málefnum barna, um bætt réttindi þeirra.

Nánari upplýsingar veitir Nína Helgadóttir, teymisstjóri málefna flóttafólks.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Söfnuðu 50 þúsund fyrir Rauða krossinn
Almennar fréttir 17. mars 2023Tvær stelpur söfnuðu fé fyrir Rauða krossinn með kaffi- og kleinusölu í Langholtsskóla.

Framúrskarandi sjálfboðaliðar
Almennar fréttir 15. mars 2023Sjálfboðaliðarnir Monika Emilsdóttir og Ragnar Kjartansson fengu viðurkenninguna Framúrskarandi sjálfboðaliðar á nýliðnum aðalfundi Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu þann 9. mars.

Starf Rauða krossins kynnt fyrir öllum landsfélögum heims
Alþjóðastarf 08. mars 2023Rauði krossinn á Íslandi kynnti í dag vinnu sína í þágu verndar, jafnréttis og þátttöku án aðgreiningar fyrir landsfélögum Rauða krossins um allan heim.