Almennar fréttir

Origo og Rauði krossinn\r\nbæta tæknilega innviði og hjálparstarf í Afríku

21. október 2021

Rauði krossinn á Íslandi hefur frá árinu 2013 staðið fyrir metnaðarfullu verkefni sem miðar að því að byggja getu afrískra landsfélaga Rauða kross hreyfingarinnar í upplýsinga- og samskiptatækni. Origo er nýjasti samstarfsaðili Rauða krossins í verkefninu.

Rauði krossinn á Íslandi hefur frá árinu 2013 staðið fyrir metnaðarfullu verkefni sem miðar að því að byggja getu afrískra landsfélaga Rauða kross hreyfingarinnar í upplýsinga- og samskiptatækni. Fjárfesting í slíkri uppbyggingu stóreykur getu landsfélaga til að framkvæma hjálparstarf með meiri skilvirkni og hagkvæmni. Verkefnið kallast Brúun hins stafræna bils og nýtur dyggs fjárstuðnings íslenskra stjórnvalda auk þess sem nokkur af framsæknustu fyrirtækjum landsins veita því tæknilegan stuðning með þátttöku starfsfólks sem býr yfir sérþekkingu á fjölbreyttum sviðum í upplýsinga- og samskiptatækni. Origo er nýjasti samstarfsaðili Rauða krossins í verkefninu, en fyrir styðja það Íslandsbanki, Reiknistofa bankanna og ST2.

Mikilvægi þátttöku atvinnulífsins í þróunarsamvinnu
Guðný Nielsen, verkfræðingur og verkefnastjóri hjá Rauða krossinum segir að mörg Rauða kross landsfélög í Afríku búi við mjög bágan kost og reiði sig á gamla og jafnvel úrelta tækni. „Þannig að tækifærin til að stórefla árangur og gera landsfélögin betur í stakk búin fyrir miklar framtíðaráskoranir eru í raun óteljandi. Það er mjög spennandi að taka þátt í slíkri uppbyggingu. Bæði fyrir okkur, en ekki síst íslensk fyrirtæki sem búa yfir mikilli sérþekkingu á þessu sviði og hafa hér tækifæri til þess að virkja þessa þekkingu utan landssteinanna, í sumum af fátækustu ríkjum heims,“ segir Guðný.

Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, hefur varað við því að hraði sjálfbærrar þróunar sé of hægur og hvatt einkageirann til að vera drifkraftur í þeirri vegferð. Það gera sömuleiðis íslensk stjórnvöld, sem fyrir nokkrum árum settu á fót sérstakan samstarfssjóð við atvinnulífið um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Hlutverk sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu með það að markmiði að draga úr fátækt og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í fátækum ríkjum heims.

Origo vinnur að því að nýta tækni til að bæta samfélagið
„Origo vinnur að þróun lausna sem leitast við að bæta samfélagið. Upplýsingatækni mun gegna stóru hlutverki þegar kemur að jafnrétti kynjanna, umhverfismálum og heilsu-og vellíðan fólks. Má sem dæmi nefna heilbrigðislausnir Origo sem beita sér að því að bæta upplifun og þjónustu innan heilbrigðiskefisins, einnig Timian innkaupakerfið sem sýnir kolefnisspor vara í innkaupum og Justly Pay – hugbúnaður sem hjálpar fyrirtækjum að komast í gegnum jafnlaunavottun með stafrænum hætti. Við trúum á opna þekkingu, frjálsa dreifingu hugmynda og hugvits og að með því að deila sem mestri þekkingu milli fólks leiði hún til samlegðaráhrifa í uppbyggingu betra samfélags fyrir alla“, segir Guðrún Svava Kristinssdóttir sem sér um samræmingu samfélagslegrar ábyrgðar hjá Origo „Origo leitar leiða til þess að styðja við góð málefni hvar sem þau finnast, hvort sem það er í þágu viðskiptavina sinna eða góðgerðastarf eins og samstarfið við Rauða krossinn á Íslandi.“

Origo tekur meðal annars mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Við höfum valið að styðja sérstaklega við fjögur heimsmarkmið; 5, jafnrétti kynjanna, 9, nýsköpun og uppbygging, 12, ábyrg neysla og 13, aðgerðir í loftslagsmálum. Þetta samstarfsverkefni við Rauða krossinn vinnur einmitt meðal annars að heimsmarkmiðum 5 og 9 svo það passar einstaklega vel við okkar markmið.

Origo vill beita sér að því að draga úr neikvæðum áhrifum starfsemi sinnar á samfélagið og nýta tæknina til þess að ná aukinni sjálfbærni. Origo beitir sér gegn sóun og má til stuðnings þess nefna verkefnið Aukalíf sem leitast við að gera hringrásarhagkerfið aðgengilegt öllum – þ.e að vörur halda verðmæti sínu og notagildi eins lengi og mögulegt er. Einnig býður Origo upp á að versla notaðar eða umbúðalausar vörur undir Notað/Endurnýtt á netverslun. Origo er með fleiri verkefni af þessu tagi, eitt af hverjum er að sýna kolefnisfótspor af öllum vörum sínum og þjónustu.

Samstarfið við Rauða krossinn – íslenskt tækniþekking nýtist í Sierra Leone í gegnum fjarfundabúnað

\"Anton-Yumkella-Madlyn-Website-Training\"

Origo leggur til sérþekkingu og tíma tæknifólks síns í að aðstoða samstarfsaðila Rauða krossins í Afríku að verða sjálfbær í tæknilegum málum er snerta starfsemi þeirra.

Anton og heldur sýnikennslu í vefumsjón fyrir starfsfólk Rauða krossins í Sierra Leone




 

Anton Stefánsson, vefforritari og starfsmaður Origo hefur verið í hvað mestu samstarfi við Rauða krossinn í Sierra Leone fyrir hönd Origo. Vinnan hans hefur snúist að aðstoða landsfélagið við að halda úti og uppfæra vefsíðu sína. Anton leiddi til dæmis starfsfólk í gegnum bakenda vefsíðunnar og hjálpaði þeim áfram í því að geta sjálf uppfært og haldið upplýsingum til haga. Einnig snerist vinnan um netöryggi og aðgangsstýringu.

\"MicrosoftTeams-image-26-002-\"Anton Stefánsson

 

„Það sem kom mér mest á óvart þegar ég byrjaði í þessu frábæra samstarfi var hvað ég gat í raun hjálpað rosalega mikið með því einfaldlega að deila minni þekkingu,“ segir Anton. „Undanfarna mánuði hef ég verið að funda með starfsfólki Rauða krossins í Sierra Leone á Teams og hjálpaði þeim við að uppfæra vefsíðuna þeirra og eitt af mínum fyrstu verkum var sýna þeim hvernig þau gátu uppfært hlekk í fæti á vefsíðunni sem hafði vísað inná ranga Facebook síðu í dágóðan tíma. Þetta litla verk gerði þau strax svo glöð og ég fann fyrir svo miklu þakklæti.“

 
Brúun hins stafræna bils er langtímaverkefni Rauða krossins og mun þessi vinna halda áfram næstu árin, með stuðningi stjórnvalda og fyrirtækja. Fleiri fyrirtækjum verður boðið að taka þátt. „Áreiðanleg upplýsinga- og samskiptatækni getur í raun skilið á milli lífs og dauða þegar kemur að hjálparstarfi. Nú sem aldrei fyrr erum við minnt á mikilvægi tækninnar þegar hjálparsamtök um heim allan þurfa að reiða sig á tækni til þess að miðla upplýsingum um COVID-19 til berskjaldaðra samfélaga. Þessi samvinna við Origo hefur hjálpað kollegum okkar í Sierra Leone að tryggja lífsnauðsynlegar samskiptaleiðir í gegnum vefsíðu landsfélagsins sem og samfélagsmiðla,“ segir Guðný.