Almennar fréttir

Rauði krossinn fagnar komu flóttafólks til landsins og óskar eftir fleiri sjálfboðaliðum

15. september 2021

Sex sýrlenskar fjölskyldur komu til landsins í síðustu viku.

“Við komum til að geta átt líf.” Þetta sagði sýrlenskur fjölskyldufaðir sem kom til landsins í síðustu viku og fékk hér vernd í boði íslenskra stjórnvalda. Alls komu sex sýrlenskar fjölskyldur eða 33 einstaklingar í boði stjórnvalda, svokallaðir kvótaflóttamenn. Enn er von á þremur fjölskyldum þaðan til viðbótar. Fólkið átti að koma á síðasta ári en það tafðist vegna heimsfaraldursins, þannig að síðast var tekið á móti flóttafólki hér í boði stjórnvalda haustið 2019.

Biðin hefur verið fólkinu erfið. Flest hafa þau búið í Líbanon, þangað sem þau flúðu, í fjölda ára við afar erfiðan kost. Enda er Líbanon það land sem hýsir hlutfallslega flesta flóttamenn á heimsvísu. Fæst áttu þau möguleika á að afla sér nægra tekna til að hafa í sig og á og börn hafa sum ekki komist mikið í skóla. Ástandið vegna COVID19 gerði síðan allt mun erfiðara. Ósk þeirra er að hefja nýtt líf á Íslandi, læra tungumálið, stunda nám og vinnu. Fá tækifæri til að eignast mannsæmandi líf.

Starfsfólk Rauða krossins á Íslandi og Fjölmenningarseturs og  tóku á móti fjölskyldunum við komuna til landsins. Eftir að fjölskyldurnar hafa lokið sóttkví fara þær í þau sveitarfélög þar sem þau fá stuðning fyrstu árin í nýjum heimkynnum, til Árborgar, Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Akureyrar. 

Rauði krossinn fagnar komu fólksins hingað til lands, eftir langa bið. Félagið hefur starfað með flóttafólki frá árinu 1956, þegar flóttafólk kom hingað til lands í fyrsta sinn í boði stjórnvalda, eða yfir 65 ára tímabil. Í þennan tíma hefur Rauði krossinn gegnt mikilvægu hlutverki í móttöku, aðlögun og hagsmunagæslu flóttafólks ásamt aðstoð og þjónustu við fólk sem kemur á eigin vegum í leit að alþjóðlegri vernd.

Um miðjan október er síðan von á afgönsku flóttafólki frá Íran og eftir það er gert ráð fyrir einstaklingum frá ýmsum Afríkuríkjum og koma þeir frá Kenýa.

Undanfarin ár hafa stjórnvöld lagt metnað í að þróa þjónustu í kringum samræmda móttöku flóttafólks sem er ætlað að aðstoða allt flóttafólk á sambærilegan hátt. Rauði krossinn sinnir hlutverki sínu við móttökuna í nánu samráði og samvinnu við stjórnvöld, félagsþjónustur sveitarfélaga og aðra hagsmunaaðila eins og Fjölmenningarsetur og Vinnumálastofnun sem koma nú að verkefninu með auknum krafti. Meginverkefni sjálfboðaliða og starfsmanna Rauða krossins er að veita flóttafólki sálfélagslegan stuðning leiðsögu-og tungumálavina enda sýnir reynslan að það að greiða fyrir tengslum inn í samfélagið gegnum persónulegan vinskap getur skipt sköpum við að festa hér rætur.

Rauði krossinn auglýsir nú eftir fleiri sjálfboðaliðum til að vera fólkinu innan handar, sérstaklega í grennd við ofangreind sveitarfélög sem og í Reykjanesbæ. Allir geta gert eitthvað?til að auðvelda nýju íbúunum að aðlagast íslensku samfélagi. Það er mikilvægt að sem flestir í samfélaginu taki þátt í því að bjóða fólkið velkomið. Við bendum áhugasömum að hafa samband í s. 570-4000 eða skrá sig beint gegnum vefinn okkar.

\"MicrosoftTeams-image-14-\"Til fróðleiks má vekja athygli á því að ferðaþjónustu- og fjölskyldufyrirtækið Guðmundur Jónasson sem nú heitir GJTravel hefur frá upphafi, frá 1956, boðist til að sækja flóttafólkið á Keflavíkurflugvöll endurgjaldslaust. Bílstjórarnir sem nú sinna því verkefni eru barnabörn Guðmundar heitins og finnst jafn sjálfsagt að leggja sitt af mörkum við að bjóða nýja íbúa velkomna hingað, úr sárri neyð. Rauði krossinn þakkar þeim innilega dyggan stuðning og telur framlag þeirra sannarlega til eftirbreytni.