Almennar fréttir

Rauði krossinn sér um farsóttarhúsið og sinnir símtölum 1717

06. mars 2020

Nú þegar faraldur COVID-19 af völdum kórónaveirunnar breiðist hratt út gegnir Rauði krossinn á Íslandi ákveðum skyldum og tekur þátt í viðbragðsáætlun almannavarna vegna heimsfaraldsins

Nú þegar faraldur COVID-19 af völdum kórónaveirunnar breiðist hratt út gegnir Rauði krossinn á Íslandi ákveðum skyldum og tekur þátt í viðbragðsáætlun almannavarna vegna heimsfaraldsins. Rauði krossinn hefur umsjá með farsóttarhúsinu og gegnir Hjálparsíminn 1717 mikilvægu hlutverki. Upplýsingafulltrúi Rauða krossins er hluti af upplýsingateymi almannavarna sem starfar í samhæfingarstöð almannavarna (SST). Almannavarnir hafa lýst yfir neyðarstigi vegna faraldsins.

Farsóttarhús

Eitt af verkefnum Rauða krossins vegna COVID-19 er umsjá farsóttarhússins á Rauðarárstíg og hugsað fyrir þá einstaklinga sem er með einkenni og bíða eftir niðurstöðum eða veikt af COVID-19 og geta af ákveðnum ástæðum ekki verið heima hjá sér. Ákvörðun um dvöl í farsóttarhúsinu er tekin af lækni í samráði við farsóttarhúsið. 

Í farsóttarhúsinu starfa sjálfboðaliðar Rauða krossins sem eru allir sérþjálfaðir að veita sálrænan stuðning og hafa fengið sérstaka þjálfun vegna vinnu sinnar með fólki sem dvelur í sóttkví og einangrun. Slíkur stuðningur getur skipt sköpum á tímum sem þessum.

\"2020-03-06-10_56_55-Window\"Gylfi Þór Þor­steins­son, um­sjón­ar­maður farsóttarhússins // mynd: mbl.is

Hjálparsíminn 1717

\"Logo-1717\"

Sími læknavaktarinnar 1700,  veitir upplýsingar um COVID-19 og skal fólk er finnur fyrir sjúkdómseinkennum veirunnar hafa samband við 1700. 

Hjálparsímann 1717 og netspjallið veitir sálrænan stuðning og stendur almenningi til boða allan sólahringinn en Hjálparsíminn tekur einnig við yfirfalli frá símanúmeri Læknavaktarinnar.

Ef fólk finnur fyrir kvíða vegna COVID-19 er alltaf einhver til þess að svara á hjálparsímanum eða netspjallinu. 

Þá minnir Rauði krossinn á mikilvægi handþvottar og bendir á tilmæli frá landlækni sem koma fram hér að neðan. 

\"87701617_1791675240963366_8732126880267763712_o\"