Almennar fréttir

Röð út á götu á risa kíló fatamarkaði Rauða krossins

21. október 2021

Síðasta laugardag 16 október sl. var haldinn risa kíló fatamarkaður hjá Rauða krossins. Síðasta laugardag 16 október sl. var haldinn risa kíló fatamarkaður hjá Rauða krossins.

 Síðasta laugardag 16 október sl. var haldinn risa kíló fatamarkaður hjá Rauða krossins. Slíkir markaðir hafa verið haldnir nokkrum sinnum á höfuðborgarsvæðinu og víðs vegar um landið. Markmið með slíkum kílómörkuðum er að efla alla endurnýtingu á góðum fötum innanlands.

\"\"

Á markaðnum síðasta laugardag var sannarlega hægt að gera mjög góð kaup og fjöldi fólks nýtti sér það. Rauði krossinn reiknar með að um eitt tonn af fötum hafi selst á markaðnum, sem er nýtt met á slíkum mörkuðum Rauða krossins. Starfsmenn og sjálfboðaliðar hafa fundið fyrir mikilli tilhlökkun fólks í aðdraganda markaðarins og mættu fjölmargir af tryggustu viðskiptavinum Rauðakrossbúðanna á markaðinn.

Fjölmennasti hópurinn sem mætti á markaðinn voru í aldurshópnum 18-25 ára sem er einmitt sá aldurshópur sem verslar hvað mest í fatabúðum Rauða krossins. Flestir viðskiptavinir versluðu milli 2-3 kg af fötum á markaðnum. Kílóverðið var 2000 kr en lækkaði niður í 1500 kr ef verslað var fyrir meira en 3 kg. 

\"20211016105911\"Þrátt fyrir þann fjölda sem mætti á markaðinn fór allt mjög vel fram og viðskiptavinir sýndu mikla kurteisi og virtu mjög vel allar fjöldatakmarkanir inn á svæðið. Markaðurinn opnaði kl. 11 en strax upp úr klukkan 10 var farin að myndast röð fyrir utan. Það er því ekki annað hægt að segja en að markaðurinn hafi gengið einstaklega vel.


Rauði krossinn þakkar öllum viðskiptavinum sem mættu á markaðinn síðasta laugardag og hlakkar til að taka á móti þeim sem ekki gátu mætt í einni af fatabúðum Rauða krossins um allt land.