Almennar fréttir

Sálfræðingar á vegum Rauða krossins á Íslandi við störf í Malaví

14. desember 2018

Sálfræðingarnir Elfa Dögg S. Leifsdóttir og Jóhann Thoroddsen fóru á dögunum sem sendifulltrúar Rauða krossins til Malaví þar sem félagið vinnur að langtíma þróunarverkefninu Aukinn viðnámsþróttur nærsamfélaga í þremur sunnanverðum héruðum landsins. 

Sálfræðingarnir Elfa Dögg S. Leifsdóttir og Jóhann Thoroddsen fóru á dögunum sem sendifulltrúar Rauða krossins til Malaví þar sem félagið vinnur að langtímaþróunarverkefninu Aukinn viðnámsþróttur nærsamfélaga í þremur sunnanverðum héruðum landsins. Verkefnið er unnið í samvinnu við systurfélög Rauða krossins í Danmörku, Finnlandi og Ítalíu og styður utanríkisráðuneytið það dyggilega. 

\"Malavi1\"

Tilgangur ferðarinnar var að halda leiðbeinendanámskeið fyrir starfsfólk malavíska Rauða krossins í sálrænum stuðningi. Námskeiðið er liður í að styrkja innviði malavíska landsfélagsins og gera sálrænan stuðning part af sem flestum verkefnum þess vítt og breytt um landið, en þörfin er mikil enda búa milljónir íbúa landsins við mikla fátækt. Þátttakendum námskeiðsins er nú í framhaldinu ætlað að halda styttri og lengri námskeið um sálrænan stuðning fyrir starfsfólk, sjálfboðaliða og almenning í Malaví.

Námskeiðið stóð yfir í fimm daga og það sóttu 19 starfsmenn sem komu frá þremur svæðum Malaví auk landsskrifstofu. Þátttakendur voru einstaklega áhugasamir og sýndu mikla þekkingu. 

 

\"Malavi2\"

Í lok námskeiðsins var þátttakendum skipt niður í litla hópa og átti hver hópur að útbúa tæplega hálftíma ör-námskeið í sálrænum stuðningi. Þessar  kynningar heppnuðust vel og sýndu þátttakendur góða færni í að koma þessum fróðleik á framfæri. Þá var stóra hópnum skipt upp í tvennt og hvor hópur um sig útbjó áætlun um væntanlegt námskeiðahald þátttakenda í framhaldinu.

\"Malavi3\"\"Malavi5\"