Almennar fréttir
Seldi muni til að geta styrkt Rauða krossinn
06. ágúst 2024
Klara Björk Ágústsdóttir seldi litla muni til að styrkja Rauða krossinn.
Klara Björk Ágústsdóttir var með litla búð fyrir utan heima hjá sér og auglýsti hana í hverfisgrúbbunni sinni á Facebook.
Hún seldi allskyns litla muni og gaf afraksturinn til Rauða krossins.
Við þökkum Klöru kærlega fyrir hennar framlag í þágu mannúðar!