
Hafdís Lilja Árnadóttir, Emilíana Ósk Randversdóttir og Unnur Ylfa Andradóttir eru miklir gleðigjafar. Mynd: Rauði krossinn/Davíð Þór
Þrjár vinkonur úr Hafnarfirði komu léttar í spori og lund í höfuðstöðvar Rauða krossins nýverið til að afhenta félaginu söfnunarfé sem þær höfðu aflað. Þær höfðu tekið upp á því að hanna og búa til falleg armbönd og bjóða þau til sölu fyrir utan Suðurbæjarlaug.
„Við viljum að Rauði krossinn fái þennan pening,“ sögðu þær en samtals höfðu þær safnað 10.137 krónum. Þær segja að sumir sundgestir hafi ekki viljað kaupa armbönd því þeir áttu þegar nóg af armböndum. „En þeir létu okkur samt fá pening!“ sögðu þær glaðar í bragði.
Þær Hafdís Lilja Árnadóttir, Emilíana Ósk Randversdóttir og Unnur Ylfa Andradóttir glöddu okkur mikið með heimsókn sinni og söfnunarféð sem þær öfluðu mun styrkja starf Rauða krossins fyrir fólk sem þarf á aðstoð að halda.
Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir að vera með mannúðinni í liði og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Minningarorð um Eggert Ásgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Rauða krossins

Brynhildur ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins

Fjall af flöskum breyttist í peninga fyrir Rauða krossinn

Söfnuðu fyrir börn sem búa við stríð