Arney Hlynsdóttir og Emma Dís Karlsdóttir afhentu Rauða krossinum söfnunarféð. Mynd: Rósa
Vinkonurnar Arney Hlynsdóttir og Emma Dís Karlsdóttir, báðar nemendur í 2. bekk í Setbergsskóla, gengu nýverið í hús í Setbergshverfinu í Hafnarfirði með litla ferðatösku í eftirdragi. Í töskuna höfðu þær sett leikföng, barnaföt, fallega steina sem þær fundu og myndir sem þær höfðu teiknað. Tilgangur fararinnar var að selja varninginn og safna þannig pening fyrir fátæk börn í útlöndum.
Íbúar í Setberginu tóku vinkonunum ungu vel og þegar upp var staðið tókst þeim að safna 5.451 krónu.
Fjármunina færðu þær Rauða krossinum nýverið og fengu viðurkenningarskjal og sundpoka í þakklætisskyni.
Rauði krossinn þakkar Arneyju og Emmu Dís kærlega fyrir að vera með mannúðinni í liði og hvetur fleiri börn til að feta í þeirra fótspor.
Vinkonurnar með töskuna góðu sem var full af alls konar varningi sem þær seldu til styrktar góðum málstað.



