Almennar fréttir
Sigurbjörg Rún tekin við stöðu deildarstjóra
01. apríl 2026
„Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir,“ segir Sigurbjörg Rún Jónsdóttir, nýr deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins.
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins. Sirrý, eins og hún er jafnan kölluð, mætti til starfa í höfuðstöðvum deildarinnar í Viðjulundi 2 á Akureyri í dag. „Ég hlakka til að kynnast öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki deildarinnar og halda áfram að byggja upp það mikilvæga starf sem deildin sinnir á Norðurlandi,“ segir Sirrý.
Sirrý er 57 ára og alin upp á Akureyri. Hún er með BA-gráðu í íslensku, meistaragráðu í mannauðsstjórnun og er einnig markþjálfi. Áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Háskólanum á Akureyri.
Auk Sirrýjar starfa sjö á skrifstofu Eyjafjarðardeildar Rauða krossins, flest í hlutastarfi. Sjálfboðaliðar deildarinnar voru 382 í árslok 2025 og hafa þeir aldrei verið jafnmargir.
Starfslið og sjálfboðaliðar sinna mörgum og fjölbreyttum verkefnum á Eyjafjarðarsvæðinu. Má þar nefna söfnun, flokkun og sölu á notuðum fatnaði, vinaverkefni sem miða að því að rjúfa einangrun fólks, stuðning við flóttafólk, skaðaminnkandi verkefni og málsvarastarf fyrir jaðarsetta hópa.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.
Kvaddur eftir 30 ára starf fyrir Rauða krossinn
Almennar fréttir 30. mars 2026Gunnar Margeir Baldursson hefur látið af störfum varaformanns Suðurnesjadeildar Rauða krossins og var kvaddur með góðum þökkum á aðalfundi deildarinnar nýverið.