Almennar fréttir

Sumarstörf hjá Rauða krossinum

05. maí 2021

Við leitum að hörkuduglegum, samviskusömum og drífandi einstaklingum til að sinna fjáröflun og kynningarstarfi fyrir Rauða krossinn í sumar.

Við leitum að hörkuduglegum, samviskusömum og drífandi einstaklingum til að sinna fjáröflun og kynningarstarfi fyrir Rauða krossinn í sumar. Umsóknarfrestur er til 11. maí.

Vinnutími er á milli klukkan 13 og 18 alla virka daga en starfið felst í að kynna starfsemi Rauða krossins og bjóða einstaklingum að gerast styrktaraðilar félagsins. 

Götukynnar þurfa að hafa mjög góða samskiptahæfni, vera jákvæðir, samviskusamir, áreiðanlegir og áhugasamir um verkenfi Rauða krossins. Auk þess er reynsla af sölumennsku kostur. Við bendum á að eingöngu einstaklingar 18 ára og eldri koma til greina.

Nánari upplýsingar og móttaka á umsókna er á Alfreð.