Almennar fréttir
Þorsteinn nýr formaður stjórnar
17. mars 2026
Formannsskipti urðu í stjórn Höfuðborgardeildar Rauða krossins á aðalfundi deildarinnar 12. mars en þá tók Þorsteinn Jónsson við formennsku af Fanneyju Birnu Jónsdóttur.
Töluverðar breytingar urðu á stjórn höfuðborgardeildar Rauða krossins á aðalfundi deildarinnar sem haldinn var 12. mars. Fanney Birna Jónsdóttir lét af formennsku og við tók Þorsteinn Jónsson, bifreiðasmiður og fyrrverandi tæknimaður hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Þá kom Auðbjörg Ólafsdóttir ný inn í aðalstjórn og tveir nýir varamenn voru kjörnir, þau Fríða Björk Ingvarsdóttir og Jón Sigurðsson.
Úr stjórn viku, auk Fanneyjar Birnu, Ali Tasheen Ali Ali og Indriði Þröstur Jónsson. Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra góðu störf fyrir Rauða krossinn.
Eftir breytingarnar eru eftirtaldir í stjórn Höfuðborgardeildar: Þorsteinn Jónsson formaður, Margrét Gauja Magnúsdóttir, Helga Sif Friðjónsdóttir, Hákon Skúlason, Auðbjörg Ólafsdóttir, Guðfinna Guðmundsdóttir og Þorsteinn Á. Sürmeli.
Varamenn: Fríða Björk Ingvarsdóttir og Jón Sigurðsson.
Fyrsta heila starfsár nýrrar deildar
Höfuðborgardeild Rauða krossins varð til við sameiningu deilda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem lauk árið 2024. Árið í fyrra var því fyrsta heila starfsár hinnar nýju deildar.
Höfuðborgardeildin sinnir margvíslegum verkefnum og hefur innan sinna vébanda fjöldann allan af sjálfboðaliðum sem bera hitann og þungann af starfi deildarinnar.
Þrír þessara sjálfboðaliða fengu sérstaka viðurkenningu fyrir störf sín á aðalfundinum, þær Halldóra Kristín Guðjónsdóttir, Anika Noack og Sigríður Birna Sigvaldadóttir.
Halldóra Kristín hefur verið sjálfboðaliði í félagslegum verkefnum Rauða krossins frá árinu 2022. Anika hefur verið sjálfboðaliði í Frú Ragnheiði frá árinu 2023 og Sigríður Birna hefur verið sjálfboðaliði í Aðstoð eftir afplánun frá árinu 2019. „Þær eru allar ómetanlegir hlekkir, hver í sínum verkefnum, og sinna sínu sjálfboðaliðastarfi af fagmennsku og umhyggju fyrir gestgjöfum og skjólstæðingum,“ segir Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri Höfuðborgardeildar. „Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra framlag í gegnum árin.“
Í nýútkominni ársskýrslu Höfuðborgardeildarinnar má lesa viðtöl við þær allar. Í skýrslunni, sem má finna hér undir skýrslur, fundargerðir og fleira, er enn fremur að finna alls konar fróðleik um öll verkefnin sem sinnt var af starfsfólki og sjálfboðaliðum árið 2025.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Bökuðu 470 smákökur til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 24. apríl 2026Fjögur bekkjarsystkin úr 4. bekk í Barnaskóla Kársness lögðu eldhús heima hjá einu þeirra undir sig um helgina og bökuðu hvorki fleiri né færri en 470 kexkökur sem þau svo seldu til styrktar Rauða krossinum. „Fyrir börn sem þurfa hjálp,“ segja þau.
Að upplifa þakklætið gefur svo gott í hjartað
Innanlandsstarf 20. apríl 2026Framlag Sigríðar Birnu Sigvaldadóttur til verkefna Rauða krossins með fólki í afplánun „hefur skilað sér í raunverulegri breytingu fyrir marga,“ segir í rökstuðningi stjórnar höfuðborgardeildar Rauða krossins sem hefur valið hana einn af sjálfboðaliðum ársins. „Það er gott að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra,“ segir Sigríður.
Langar þig að láta gott af þér leiða á Austurlandi?
Innanlandsstarf 14. apríl 2026Rauði krossinn í Múlasýslu býður upp á spennandi námskeið fyrir nýja og núverandi sjálfboðaliða. Námskeiðin eru opin öllum sem langar til að kynna sér störf Rauða krossins og sjálfboðaliða á svæðinu.