Almennar fréttir

Tilnefndu skyndihjálparmann ársins 2018

17. desember 2018

Hægt er að senda inn tilnefningu í gegnum skyndihjalp.is

Vitið þið um einhvern sem með snarræði sínu og réttum viðbrögðum hefur bjargað mannslífi á árinu 2018?  Ef svo er sendu okkur ábendingu í gegnum vefinn skyndihjalp.is eða í gegnum hlekkinn neðst í fréttinni. Tilnefningar þurfa að berast Rauða krossinum eigi síðar en þann 19. janúar 2019.

Nánar um val á skyndihjálparmanni ársins

Á hverju ári velur Rauði krossinn skyndihjálparmann ársins . Þá er einstaklingi sem hefur á liðnu ári veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt afhent viðurkenning við hátíðlega athöfn. Tilgangurinn með tilnefningunni er að vekja athygli almennings á mikilvægi skyndihjálpar og hvetja sem flesta til að vera undir það búnir að veita hjálp á vettvangi slysa og veikinda. 

Eftirfarandi reglur gilda um tilnefningar

·         Skyndihjálparmaður ársins þarf að hafa bjargað mannslífi.

·         Skyndihjálparmaður ársins þarf að hafa sýnt eftirtektaverða kunnáttu og færni í almennri skyndihjálp.

·         Hjálpin sem veitt var verður að hafa leitt til betri líðan eða stöðugleika á ástandi hins slasaða eða sjúka frá þeim tíma sem slysið varð þar til fagfólk kom á vettvang.

·         Skyndihjálparmaður ársins má ekki vera menntaður hjúkrunarfræðingur, læknir, sjúkraflutn­ingamaður, bráðatæknir eða sjúkraliði.

·         Skyndihjálparmaður ársins má ekki hafa unnið afrekið í starfi sínu innan öryggis- og bráðaþjónustu, það á til dæmis við um björgunarsveitarfólk, lögregluþjóna, öryggis- og sundlaugaverði.

Dómnefnd um val á Skyndihjálparmanni ársins er skipuð fulltrúum frá: Rauða krossinum, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Neyðarlínunni, Landspítala háskólasjúkrahúsi, Almannavarna­deild ríkislögreglustjóra og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Hver aðili skipar einn fulltrúa nema Rauði krossinn sem skipar tvo.

Skyndihjálparmaður ársins hlýtur viðurkenningaskjal Rauða krossins,  skyndihjálparbók og ávísun á skyndihjálparnámskeið allt að 16 klst.

Athugið að tilnefningar verða bornar undir vitni að atburðinum.

Hægt er að senda inn tilnefningu hér.