Almennar fréttir
Verkefni Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins\r\nbjarga mannslífum í Sierra Leone
26. febrúar 2019
Með stuðningi Mannvina Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins hefur Rauði krossinn á Íslandi sett af stað verkefni sem veitir lífsbjargandi aðstoð í Sierra Leone sem bætir velferð þúsunda.
Með stuðningi Mannvina Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins hefur Rauði krossinn á Íslandi sett af stað verkefni sem veitir lífsbjargandi aðstoð í Sierra Leone sem bætir velferð þúsunda. „Það er eiginlega ótrúlegt hvað hægt er að hjálpa mörgu fólki fyrir ekki meiri pening“ segir Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins eftir vettvangsferð til Sierra Leone þar sem umfangsmikið vatns- og heilbrigðisverkefni er að fara af stað.
Sierra Leone er eitt fátækasta ríki heims og þar er einnig barna- og mæðradauði með því hæsta sem gerist í heimi. Til að mæta þessum alvarlegu áskorunum ákváðu Rauði kross félögin í Sierra Leone, Finnlandi, Svíþjóð og á Íslandi að taka höndum saman með sameiginlegu verkefni sem er ætlað að bæta heilbrigði íbúa í fjórum af þrettán héruðum landsins. Verkefnið framundan er að stórbæta aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, veita fræðslu um heilbrigði og draga úr ofbeldi gegn konum og börnum.
„Við erum ótrúlega þakklát Íslandi fyrir stuðninginn og mig langar til að þakka utanríkisráðherra Íslands persónulega fyrir að veita okkur þennan stuðning“ segir Kpawuru Sandy, sem er framkvæmdastjóri Rauða krossins í Sierra Leone. „En við vitum að Ísland er mjög þróað samfélag í dag en við vitum líka að Ísland var einu sinni fátækt, en með mikilli áræðni og aðstoð utanaðkomandi vina tókst því að brjótast úr fátækt til bjargálna. Það má því segja að við lítum til Íslands og ætlum okkur að læra mikið af samstarfinu við Ísland og af vinum okkar á Íslandi. Það sama má segja um Finnland og okkar finnsku vini.“
Fá alþjóðleg hjálparsamtök eru starfandi í Sierra Leone nú, öfugt við það sem var þegar Ebólufaraldurinn geisaði þar á árunum 2014-2016. Flest þeirra hafa horfið á braut þrátt fyrir að mikla neyð. Það mæðir meira á Rauða krossinum í dag, vegna þess hve fá alþjóðleg samtök eru starfandi í landinu. „Sérstaða Rauða krossins er meðal annars sú að í öllum löndum eru starfandi Rauða kross félög sem eru á svæðinu áður en hamfarir verða, á meðan hamfarir eru og eftir að þeim lýkur. Enginn þekkir aðstæður betur á vettvangi en starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins sem skipta milljónum á heimsvísu“ segir Atli sem bætir við að „vegna vinnu sjálfboðaliða Rauða krossins megi nýta hverja krónu betur heldur en þegar vinnu er haldið uppi af starfsfólki sem sinnir öllum störfum. Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Sierra Leone stuðla líka að aukinni uppbyggingu og þekkingarsköpun á sínum heimaslóðum og þar með aukinni sjálfbærni verkefna.“
Þrjú Rauða kross félög á Norðurlöndum koma að verkefninu ásamt Rauða krossinum í Sierra Leone. „Þetta er vonandi vísir að áframhaldandi farsælu samstarfi þessara þriggja norrænu Rauða kross félaga í Sierra Leone. Í sameiningu ætlum við að bjarga mannslífum, stuðla að auknu heilbrigði, fæðuöryggi og valdeflingu kvenna og stúlkna“ segir Terhi Heinäsmäki sem er svæðisfulltrúi finnska Rauða krossins í Afríku. Sandy og Atli taka undir það og segja það forgangsverkefni að stuðla að aukinni valdeflingu stúlkna og kvenna í löndum á borð við Sierra Leone. Á þann hátt tryggjum við best framþróun, stöðugleika og drögum úr fátækt til frambúðar.
Hægt er að styðja hjálparstarf Rauða krossins með því að gerast Mannvinur Rauða krossins hér.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið
Innanlandsstarf 10. febrúar 2026„Okkur hjá Rauða krossinum á Suðurnesjum er annt um að ungmennin í samfélaginu okkar öðlist aukið sjálfstraust og öryggi til að bregðast við óvæntum aðstæðum,“ segir Fanney Grétarsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á Suðurnesjum.
Rauði krossinn boðar til aðalfundar og óskar eftir framboðum
Almennar fréttir 06. febrúar 2026Rauði krossinn á Íslandi boðar til aðalfundar laugardaginn 9. maí 2026 nk. Fundurinn verður haldinn í Háteigi, á Grand Hótel, Sigtúni 28 í Reykjavík.
„Neyðarástandið er hvergi nærri á enda“
Alþjóðastarf 26. janúar 2026„Meirihluti fólksins á Gaza býr enn við skelfilegar aðstæður,“ segir Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Byggingar eru enn rústir einar. Fjölskyldur syrgja enn ástvini. Margt af því sem þær þekktu áður er horfið. Hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er staðráðin í að halda aðstoð sinni áfram.“