Almennar fréttir

Viðbragðshópur Rauða krossins í sálrænum stuðningi á Suðurlandi

27. ágúst 2019

Viðbragðshópur, með sjálfboðaliðum um allt Suðurland, var stofnaður á árinu og hefur hlotið ýmisskonar fræðslu.

Viðbragðshópur Rauða krossins í sálrænum stuðningi á Suðurlandi

Rauði krossinn á Íslandi sinnir fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi samkvæmt samningi við Almannavarnir ríkisins. Deildir Rauða krossins opna fjöldahjálparstöðvar á hættu- og neyðartímum þar sem fólki er veitt fyrsta aðstoð, svo sem upplýsingar, fæði og klæði, sameining fjölskyldna fer fram og sálrænn stuðningur er veittur. Rauði krossinn bregst einnig við skyndilegum áföllum utan almannavarnaástands eins og húsbrunum, flóðum, banaslysum og áföllum innan fjölskyldna.

Sálrænn stuðningur er sérhæfð þjónusta við fólk sem lendir í áföllum og byggir á viðurkenndum aðferðum til að bregðast við bráðum áfallastreituviðbrögðum og beinist að því að draga úr uppnámi og stuðla þannig að betri aðlögun eftir áfallið. Sálrænn stuðningur er afmarkaður, tímabundinn og með áherslu á forvarnir og mat á þörf fyrir frekari eftirfylgd.

Deildir Rauða krossins á Suðurlandi stofnuðu saman viðbragðshóp í sálrænum stuðningi á sínu svæði í febrúar á þessu ári. Haldin voru námskeið í febrúar og ágúst fyrir sjálfboðaliða í hópnum og eru nú 26 sjálfboðliðar starfandi í viðbragðshópnum sem búsettir eru á mismunandi stöðum á Suðurlandi, frá Hveragerði að Höfn í Hornafirði auk Vestmannaeyja. Allir sjálfboðaliðar innan hópsins hafa hlotið þjálfun í sálrænum stuðningi, neyðarviðbrögðum og skyndihjálp hjá Rauða krossinum ásamt því að hafa aðgang að öðrum námskeiðum sem Rauði krossinn býður upp á. Bakgrunnur hópsins er mjög fjölbreyttur, þar eru starfandi; sjúkraflutningamenn, nemar í félagsráðgjöf, öryggisvörður, leikskólakennari, sjúkraliðar, sérkennari, leikkona, hjúkrunarfræðingar og þroskaþjálfar svo fátt eitt sé nefnt. Innan hópsins er fólk sem talar m.a. norðurlandamálin, ensku, frönsku, þýsku og táknmál.

\"Namskeid-fyrir-vidbragdshop-haldid-a-Selfossi-i-februar\"Þátttakendur á námskeiði á Selfossi í febrúar sl.

Frá því að viðbragsðhópurinn var stofnaður í febrúar hefur hann verið boðaður í fjögur alvarleg útköll, þ.e. sinnt sálrænum stuðningi við þolendur og/eða vitni að rútuslysi, drukknun og tveimur flugslysum. Sjálfboðaliðar skipta með sér vöktum, fjórir á vakt viku í senn - þar af tveir staðsettir í Árnessýslu og Rangárvallarsýslu og tveir staðsettir frá Vík að Höfn auk Vestmannaeyja. Þegar um stórt útkall er að ræða eru kallaðir út fleiri sjálfboðaliðar og í öll þessi skipti gekk fljótt og vel að manna útkall. Eftir útkall er hópurinn í heild sinni boðaður á viðrunarfund þar sem farið er yfir þeirra líðan eftir útkallið. Ef á þarf að halda geta sjálfboðaliðar einnig fengið einka handleiðslu. Samstarf Rauða krossins við lögreglu og aðra viðbragðsaðila á svæðinu hefur einnig verið til fyrirmyndar og hefur lögregla komið að fræðslu til sjálfboðaliða á svæðinu.

Áður en hópurinn var stofnaður þurfti í mörgum tilfellum að fá aðstoð frá viðbragðshóp Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu þegar Rauði krossinn var kallaður út og eru það miklar vegalendir að fara, því var talið nauðsynlegt að stofna hóp á Suðurlandi. Það er mikill akkur fyrir Rauða kross deildirnar á Suðurlandi að hafa þennan hóp sjálfboðaliða sem er fljótur til þegar á þarf að halda og erum við bæði stolt og þakklát fyrir allt sem þeir hafa lagt til.

Fjóla Einarsdóttir, svæðisfulltrúi Rauða krossins á Suðurlandi