Fara á efnissvæði
Alþjóðastarf

Brýn þörf á aðstoð í Venesúela

Venesuela Jardskjalftar

Starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins í Venesúela að störfum í nótt. Mynd: Rauði krossinn í Venesúela

Tveir öflugir jarðskjálftar sem urðu með stuttu millibili í Venesúela ollu gríðarlegu tjóni. Enn er verið að meta umfang skemmda á byggingum og þá röskun sem orðin er á nauðsynlegri þjónustu. Mannfall hefur verið staðfest en fjöldi látinna er enn á huldu. Brýn og mikil þörf er á mannúðaraðstoð í landinu. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir.

Sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins í Venesúela eru að störfum á vettvangi. Félagið rekur net heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa í landinu. Fjögur teymi á vegum þess fara nú um svæðin sem urðu verst úti og meta áhrif skjálftanna. Einnig fluttu þau neyðarbirgðir á vettvang.

Höfuðstöðvar Rauða krossins í Venesúela skemmdust í skjálftunum. Sjálfboðaliðar sinna neyðaraðstoð þrátt fyrir að standa margir hverjir sjálfir frammi fyrir áhrifum skjálftanna.

Fyrri skjálftinn varð kl. rúmlega 18.00 að staðartíma í gær og mældist 7,2 að stærð. Sá síðari reið yfir tæpri mínútu síðar og var enn stærri eða 7,5. Áhrifa svo stórra skjálfta gætir á stóru svæði, m.a. í höfuðborginni Caracas.

Rafmagn, fjarskipti og samgöngur hafa raskast verulega og tilkynnt hefur verið um miklar skemmdir á sjúkrahúsum og samgöngumannvirkjum. Óttast er að eftirskjálftar muni fylgja.
Leit og björgun er forgangsatriði sem og að koma upp neyðarskýlum fyrir fólk sem hefur misst heimili sín. Þá mun Rauði krossinn veita sálrænan stuðning.

Landsfélög Rauða krossins í nágrannaríkjunum Ekvador, Kólumbíu, Mexíkó, Hondúras og Argentínu hafa einnig verið virkjuð en til allra þessara landa hefur mikill fjöldi fólks frá Venesúela flúið síðustu misseri.

Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans er að virkja viðbragðskerfi sín og hefur þegar úthlutað úr neyðarsjóði sínum 2 milljónum svissneskra franka til verkefna í landinu.