Fara á efnissvæði
Alþjóðastarf

Sögusagnir geta breiðst jafnhratt út og veiran sjálf

20260521 Ebola Croixrouge PPE Bunia RDC 6

Sjálfboðaliðar Rauða krossins klæðast hlífðarfatnaði áður en þeir búa lík tveggja einstaklinga, sem grunur leikur á að hafi verið sýktir af ebólu, til greftrunar. Mynd: ICRC

Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó geisar við afar flóknar aðstæður í landinu sem einkennast m.a. af óvissu og veikbyggðu heilbrigðiskerfi. Neyðarástand hefur lengi ríkt þar vegna átaka sem staðið hafa með litlum hléum í áratugi. Þetta ástand hefur skapað mjög erfið starfsskilyrði fyrir mannúðarsamtök.

Ótti, ranghugmyndir og tortryggni eru meðal helstu hindrana í viðbragði stofnana og samtaka við faraldrinum. Sögusagnir um að ákveðnar jurtir geti komið í veg fyrir smit og að faraldurinn sé í raun uppspuni hafa farið sem eldur í sinu milli fólks og auka enn á djúpstætt vantraust á heilbrigðisyfirvöldum. Samhliða eykst hættan á því að fólk leiti sér ekki aðstoðar í tæka tíð. Upplýsingaóreiðan sem ríkir er því einnig gríðarleg áskorun fyrir viðbragðsaðila á vettvangi því sögusagnir geta breiðst jafnhratt út og veiran sjálf.

20260521 Ebola Croixrouge Sensibilisation Bunia RDC 2

Sjálfboðaliðar Rauða krossins ræða við fólk, fullorðna jafnt sem börn, um smitvarnir gegn ebólu. Mynd: ICRC

Rauði krossinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó er að störfum á vettvangi ásamt starfsfólki frá öðrum landsfélögum og Alþjóðaráði Rauða krossins (ICRC). Líkt og alltaf í starfi Rauða krossins eru það sjálfboðaliðar úr röðum heimafólks sem eru í framlínunni. Rauði krossinn á Íslandi hefur boðið fram reyndan sendifulltrúa til verkefna í Kongó.

Sjálfboðaliðar í lykilhlutverki

Unnið er skipulega að því að veita samfélögum réttar upplýsingar og fræða fólk um nauðsynlegar smitvarnir. Byggja þarf upp traust á viðbragðsaðilum, m.a. heilbrigðisyfirvöldum, og þar gegna sjálfboðaliðar Rauða krossins algjöru lykilhlutverki. Þeir njóta trausts nágranna sinna í heimabyggð, þekkja menningu og venjur vel og eru því í einstakri aðstöðu til að ná til fólks og miðla þekkingu. Sjálfboðaliðarnir ganga í hús, fræða og ræða við fólk og hlusta á áhyggjur þess. Áður en þeir fara af stað fá þeir þjálfun og ítarlega fræðslu um eigin smitvarnir.

20260521 Ebola Croixrouge Sensibilisation Bunia RDC 3

Fólk á vegum Rauða krossins leggur sig fram við að fræða almenning og vinda ofan af sögusögnum og ranghugmyndum um ebóluveiruna. Mynd: ICRC

Auk þessa fræðsluhlutverks er Rauði krossinn lykilaðili í því að veita heilbrigðisþjónustu á mörgum þeim svæðum sem orðið hafa hvað verst úti af völdum faraldursins. Nú þegar er á þriðja tug sérhæfðra viðbragðsteyma og alþjóðlegra neyðarteyma á vegum Rauða krossins að störfum. Þá hefur miklu magni hlífðarfatnaðar verið komið þangað sem þörfin er mest.

Töluverðum fjármunum hefur að auki verið úthlutað úr neyðarsjóði Alþjóðasambands Rauða krossins (IFRC) til verkefna í Kongó. IFRC hefur einnig hafið neyðarsöfnun til frekari og áframhaldandi aðstoðar í landinu.

Ekkert bóluefni til

Yfirstandandi faraldur er sá sautjándi sem geisar í Kongó. Ekkert bóluefni er til gegn því afbrigði veirunnar sem nú herjar á svæðið og engin sértæk lyfjameðferð er til staðar. Þess vegna er snemmgreining, einangrun sýktra og sérhæfð stuðningsmeðferð á sjúkrahúsum lykilatriði.

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) lýsti um miðjan maí yfir neyðarástandi vegna faraldursins. Miðað við nýjustu tölur frá stofnuninni hafa yfir þúsund manns greinst með ebólu í Kongó og nágrannaríkinu Úganda, þar sem tilfellin eru tuttugu. Þann 21. júní voru 256 dauðsföll vegna faraldursins staðfest í Kongó. Tveir hafa látist í Úganda.

20260521 Ebola Croixrouge Sensibilisation Bunia RDC 6

Mestu skiptir nú að hefta úbreiðslu veirunnar með smitvörnum og rakningu. Átök og áðurnefnd tortryggni setja þar stórt strik í reikninginn og óttast er að faraldurinn dragist á langinn af þeim sökum. „Toppi faraldursins hefur ekki verið náð,“ sagði Bruno Michon, aðgerðastjóri viðbragða við ebólu hjá IFRC, á blaðamannafundi nýverið. Hann telur líkur á því að faraldurinn eigi eftir að vara í ár til viðbótar. IFRC óttast enn fremur að faraldurinn sé nú þegar útbreiddari en opinberar tölur gefa til kynna.

Fjármagn til mannúðar- og þróunaraðstoðar hefur dregist verulega saman á heimsvísu á undanförnum misserum. Alþjóðasamband Rauða krossins minnir á að alþjóðlegur fjárhagsstuðningur við þær aðgerðir sem unnið er að til að ráða niðurlögum faraldursins geti skipt höfuðmáli.

Þrátt fyrir allar þær áskoranir sem blasa við hefur Rauði krossinn, með sjálfboðaliða sína í broddi fylkingar, aðgang að flestum svæðum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Almennt traust á starfi hreyfingarinnar um heim allan gerir það alla jafna að verkum að Rauði krossinn kemst að svæðum og fólki í neyð sem aðrir komast ekki að.

Þannig er því líka farið í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.