Grunnnámskeið Öryggi og björgun: Aðrir + hæfnispróf

Námskeið

15 maí
til
16 maí
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 09:00 - 17:00
Leiðbeinandi Freysteinn Oddsson
Verð á mann 35.000 ISK

Grunnnámskeið fyrir sundþjálfara, sundkennara, meðhöndlara (sem starfa í laug án laugarvarðar).

Skráning
course-image
Grunnnámskeið í Öryggi og björgun er ætlað þeim sem ætla sér að starfa á sund - og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að.

Lengd námskeiðsins er 12-14 klukkustundir og skiptist í Skyndihjálp og björgun og Hæfnispróf.

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni sem þeir munu síðan geta nýtt sér til að:
Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðst við neyðartilfellum í og við vatn.
Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.

Hæfnispróf samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund - og baðstöðum fer fram á námskeiðinu og ætlað þeim þátttakendum sem þurfa að standast hæfnispróf árlega samkvæmt reglugerð. Þáttakendur þurfa að hafa meðferðis sundföt ásamt síðermabol og buxur. Um hæfnisprófið má lesa hér: https://www.ust.is/hringrasarhagkerfi/hollustuhaettir/sundstadir/haefnisprof-starfsmanna/

Þátttakendur sem standast grunnnámskeið í Öryggi og björgun fá útgefið eftirfarandi skírteini: Öryggi og björgun: Aðrir + hæfnispróf og er það gilt í eitt ár frá útgáfudegi.

Til að viðhalda réttindum þarf laugarvörður að sækja endurmenntunarnámskeið og standast hæfnispróf.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Fyrirtæki og stofnanir geta skráð þátttakendur í emaili á bjorgun@redcross.is og fengið reikning sendan.

Allar nánari upplýsingar í síma 570-4220 og á bjorgun@redcross.is.