Grunnnámskeið Öryggi og björgun: Laugarvörður + hæfnispróf

Námskeið

15 maí
til
16 maí
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 09:00 - 17:00
Leiðbeinandi Freysteinn Oddsson
Verð á mann 35.000 ISK

Grunnnámskeið fyrir Laugarverði. ATH. Einnig þarf að skrá þátttakendur á Rafrænan Laugarvörð.

Skráning
course-image
Grunnnámskeið í Öryggi og björgun: Laugarvörður er ætlað þeim sem ætla sér að starfa sem laugarverðir á sund - og baðstöðum sem almenningur hefur aðgang að.

Lengd námskeiðsins í heild er 18 - 20 klukkustundir og skiptist í Laugarvörðinn, Skyndihjálp og björgun og Hæfnispróf. ATH. að nauðsynlegt er að skrá þátttöku sérstaklega á Laugarvörðinn.

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni í hlutverki sínu, skyldum og ábyrgð sem laugarvörður. Einnig mun það veita þátttakendum þekkingu, leikni og hæfni sem þeir munu síðan geta nýtt sér til að:
Fyrirbyggja, bera kennsl á og bregðst við neyðartilfellum í og við vatn.
Veita faglega aðstoð í neyðartilvikum slysa eða bráðra veikinda þar til viðbragðsaðilar mæta á vettvang og taka við aðstæðum.

Hæfnispróf samkvæmt viðauka III í reglugerð um hollustuhætti á sund - og baðstöðum fer fram á námskeiðinu en til að hafa réttindi til að starfa sem laugarvörður þarf að standast hæfnisprófið árlega. Þáttakendur þurfa að hafa meðferðis sundföt ásamt síðermabol og buxur. Um hæfnisprófið má lesa hér: https://www.ust.is/hringrasarhagkerfi/hollustuhaettir/sundstadir/haefnisprof-starfsmanna/

Þátttakendur sem standast Grunnnámskeið Öryggi og björgun: Laugarvörður + hæfnispróf fá útgefið eftirfarandi skírteini: Öryggi og björgun: Laugarvörður og er það gilt í eitt ár frá útgáfudegi.

Til að viðhalda réttindum þarf laugarvörður að sækja endurmenntunarnámskeið og standast hæfnispróf.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Fyrirtæki og stofnanir geta skráð þátttakendur í emaili á bjorgun@redcross.is og fengið reikning sendan.

Allar nánari upplýsingar í síma 570-4220 og á bjorgun@redcross.is.