Sálræn fyrsta hjálp fyrir sjálfboðaliða - Efstaleiti 9, 103 Reykjavík

Námskeið

29 apr.
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 17:30 - 20:30
Leiðbeinandi Guðrún Svava Viðarsdóttir

Á námskeiðinu eru kenndar aðferðir sálrænnar fyrstu hjálpar til að styðja við fólk í uppnámi og þannig aðstoða það við að ná ró og stjórn á aðstæðum. Sú færni getur hjálpað þér að vera til staðar og bregðast við þegar fólk þarf á stuðningi að halda.

Skráning
course-image

Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur öðlist:
· þekkingu á sálrænni fyrstu hjálp og viti hvað það er og hvað ekki
· frekari þekkingu á viðbrögðum fólks í vanlíðan
· skilning á þremur lykilþáttum „Horfa, Hlusta og Tengja“
· færni í að veita sálræna fyrstu hjálp
· skilning á flóknum aðstæðum og viðbrögðum
· veri meðvitað um mikilvægi þess að huga einnig að sjálfum sér þegar aðstoða þarf aðra

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg.

Nánari upplýsingar í síma 570-4226 eða 570-4222 og á vinaverkefni@redcross.is.