Sálfélagslegur stuðningur í verkefnum með flóttafólki

Námskeið

24 apr.
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavik
Tími 18:00 - 21:00
Leiðbeinandi Tinna Eyberg Örlygsdóttir

Þetta námskeið er undirbúningur fyrir verðandi sjálfboðaliða í verkefnum með flóttafólki og er góð þjálfun í því að veita flóttafólki sálfélagslegan stuðning í gegnum verkefnin. Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku.

course-image
Á þessu námskeiði fá þátttakendur kynningu á Sálfélagslegum stuðningi í starfi með flóttafólki. Námskeiðið er fyrir þá sem vilja gerast sjálfboðaliðar í flóttamannaverkefnum. Sálfélagslegur stuðningur er stuðningur fyrir fólk þar sem reynt er að mæta þeirra félags og sálrænum þörfum - t.d. þörf fyrir virka hlustun, þörf fyrir félagslegar tengingar og þörf fyrir að tjá tilfinningar sínar. Á námskeiðinu fá sjálfboðaliðar tól til að styrkja hæfni sína og þekkingu til að veita betri stuðning til flóttafólks sem þeir vinna með í verkefni. Sálrænn stuðingur er einnig hjálplegur í daglegu lífi með fjölskyldu og vinum