Skyndihjálp 12 klst - Efstaleiti

Námskeið

08 jún.
til
09 jún.
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 11:00 - 17:00
Leiðbeinandi Bjarni Þorbergsson
Verð á mann 20.000 ISK

Námskeiðið er ætlað öllum, 14 ára eða eldri sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita einföldum aðferðum í skyndihjálp á öruggan hátt.

Skráning
course-image
Námskeiðið er ætlað öllum, 14 ára eða eldri, sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp og endurlífgun. Þátttakendur öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita einföldum aðferðum í skyndihjálp á öruggan hátt.

Námskeiðið er 12 klukkustundir, 6 klst hvorn dag. Það er metið til eininga í flestum framhaldsskólum, til aukinna ökuréttinda og víðar. Til öryggis er þeim sem þurfa skyndihjálparþekkingu sem hluta af starfsréttindum eða námi ráðlagt að leita staðfestingar hjá viðkomandi menntastofnun hvort námskeiðið sé tekið gilt.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

ATH!! Hægt er að fá vatn, te og kaffi en fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Allar nánari upplýsingar í síma 570-4220 og á namskeid@redcross.is.