Almennar fréttir
Almennir borgarar þjást í átökum í Úkraínu
28. febrúar 2022
Rauði krossinn hóf neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka er brutust út í Úkraínu 24. febrúar s.l. Söfnunin hefur fengið mjög góð viðbrögð frá almenningi. Nú þegar hefur safnast yfir 16 milljónir frá almenningi.
Ljóst er að mjög alvarlegt ástand hefur skapast fyrir íbúa Úkraínu og fyrirséð að neyð almenna borgara mun aukast dag frá degi. Alþjóða Rauði krossinn undirbýr nú eina umfangsmestu aðgerðir í Evrópu frá lokum síðari heimstyrjaldarinnar þar sem allt kapp er lagt á að koma nauðsynlegri mannúðaraðstoð til íbúa Úkraínu og þeirra þúsunda sem eru á flótta vegna átakanna.
Víða í Úkraínu eru bardagar háðir á götum úti, hundruð þúsundir íbúa hafa lagt á flótta og búist er við að um fimm milljónir fólks muni flýja og mikill meirihluti yfir landamærin til Póllands. Rauði krossinn hefur nú þegar opnað fjölda móttökustöðva á landamærum í Póllandi og fleiri löndum sem eiga landamæri að Úkraínu þar sem er veitt heilbrigðisþjónusta og neyðaraðstoð.

Það er mjög erfitt fyrir íbúa að nálgast nauðsynjar í Úkraínu. Mikið af fólki dvelur í neðanjarðarbyrgjum og erfitt er að nálgast áreiðanlegar upplýsingar um ástandið á mörgum landsvæðum í landinu. Úkraínski Rauði krossinn fær mikið af neyðarbeiðnum frá íbúum í bráðum vanda. Allt kapp er lagt á að koma matarpökkum, vatni og öðrum nauðsynjum til fólks, auk þess að styðja við heilbrigðisstofnanir í landinu.
Rauði krossinn hefur þungar áhyggjur af brotum á alþjóða mannúðarlögum í þessum átökum. Samkvæmt þeim lögum njóta almennir borgarar griða sem og borgaralegir innviðir á borð við vatns- og rafmagnsveitur sem ekki tengjast hernaði á nokkurn hátt. Stríðandi fylkingum er skylt að gæta meðalhófs í hernaðaraðgerðum sínum og hlífa verður óbreyttum borgurum og innviðum sem tryggja að nauðsynleg þjónusta sé veitt íbúum.
Fjöldi landsfélaga Rauða krossins í Evrópu hefur hafið söfnun og er væntanleg neyðarbeiðni frá alþjóða Rauði krossinn vegna umfangsmikilla aðgerða sem er fyrirhuguð.
Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi vill þakka almenningi og Mannvinum Rauða krossins kærlega fyrir þennan mikilvæga stuðning. “Allt fé sem safnast verður varið til að koma til móts við íbúa Úkraínu, til að koma nauðsynjavörum til íbúa og sjúkrastofnanna og tryggja aðgang að matvælum, vatni, hreinlætisvörum og nauðsynlegum lækningabúnaði fyrir særða” segir Kristín.
Rauði krossinn minnir á að Hjálparsíminn 1717 og netspjallið 1717.is er alltaf opinn. Hægt er að hafa samband vegna til að sálrænan stuðning, ráðgjöf og hlustun.
Neyðarsöfnun Rauða krossins mun halda áfram næstu daga.
Hægt er að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð til íbúa í Úkraínu með eftirtöldum leiðum:
- SMS: Senda HJALP í símanúmerið 1900 (2.900 kr.)
- Aur: @raudikrossinn eða 1235704000
- Kass: raudikrossinn eða 7783609
- Söfnunarreikningur Rauða krossins: 0342-26-12, kt. 530269-2649
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Börn með skotsár á neyðarsjúkrahúsi Rauða krossins
Alþjóðastarf 03. júlí 2025„Við höfum séð allt að 200 særða á einum degi; með skotsár, brunasár, sár eftir sprengjubrot og aðra áverka,“ segir hjúkrunarfræðingur sem starfar á neyðarsjúkrahúsi Rauða krossins í Rafah. „Við fáum til okkar börn með skotsár.“

„Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu“
Innanlandsstarf 02. júlí 2025Að vera sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum hefur þroskað Ingibjörgu Ástu Bjarnadóttur bæði persónulega og í starfi. „Hjá Rauða krossinum hef ég fengið tækifæri og traust til þess að koma mínum eigin hugmyndum á framfæri, og stuðning til þess að láta þær verða að veruleika.“

Fjármögnun neyslurýma áskorun um alla Evrópu
Innanlandsstarf 25. júní 2025Þrátt fyrir að neyslurými fyrir vímuefni hafi fyllilega sannað gildi sitt gagnvart bæði einstaklingum og samfélögum glíma þau við sama vandamálið, hvort sem þau eru í Barcelona eða Borgartúni. Starfsfólk skaðaminnkunarverkefna Rauða krossins sótti upplýsandi ráðstefnu í Strassborg.