Almennar fréttir
Alþjóðadagur flóttafólks
20. júní 2019
Í dag, á?alþjóðadegi flóttafólks,?minnum við á þá?skelfilegu staðreynd að í mannkynsögunni hafa aldrei fleiri verið á flótta.
Í dag, á? alþjóðadegi flóttafólks,? minnum við á þá ?skelfilegu staðreynd, að í mannkynssögunni hafa aldrei fleiri verið á flótta. Næstum 70 milljónir karla, kvenna og barna hafa þurft að yfirgefa heimili sitt vegna vopnaðra átaka, hamfara, ofsókna, fátæktar, hungurs eða af öðrum orsökum. Það eru fleiri heldur en íbúar Bretlandseyja.
Undanfarin ár hefur þróunin verið á þann veg, að á sama tíma og tala fólks á flótta fer stöðugt hækkandi virðast ríki heimsins vera að þrengja innflytjendastefnu sína. Þessir tveir þættir, vinna bersýnilega þvert á móti hvor öðrum.??
Þegar horft er til loftslagsbreytinga og afleiðinga þeirra á daglegt líf fólks, er ljóst að ákveðin ríki eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Oft er um að ræða ríki þar sem átök geisa eða mikil fátækt ríkir en vert er á að minna að þau ríki og þegnar þeirra eru jafnan þolendur loftslagsbreytinga en ekki gerendur.
Líkt og Rauði krossinn, þá líta nú fjölmörg alþjóðleg hjálparsamtök nú til áhrifa loftslagbreytinga við gerð aðgerðaráætlana, en breytingar á hitastigi hafa oft meiri áhrif á viðkvæmum svæðum þar sem þörf var fyrir á mannúðaraðstoð. Loftslagsbreytingar eru farnar að ýta verulega undir fólksflótta meðal annars vegna uppskerubrests af völdum þurrka. Þá er skortur á fæðu ein af orsökum átaka og því hægt að sjá samhengi milli loftslagbreytinga og átaka og flótta.
Stjórnvöld ríkja heimsins þurfa að taka ábyrgð og vinna saman að því að sporna gegn loftlagsbreytingum. Það er óboðlegt að það fólk, sem minnst má sín, verði verst úti vegna loftlagsbreytinga.??
Hafandi fæðst í einu öruggasta ríki heims, Íslandi, er erfitt að setja sig í spor þessa fólks, sem hefur þurft að yfirgefa heimalands sitt nauðugt. Í heiminum eru til landsvæði þar sem fólk hefur fæðst inn í átök og óeirðir og kynslóðir sem hafa alist upp í flóttamannabúðum. Þess vegna er?skylda okkar að rétta fram hjálparhönd.?Ísland ætti þannig að leggja miklu meira á vogarskálarnar til þróunar- og mannúðaraðstoðar sem miðar af því að gera fólki kleyft að dvelja í eigin heimalandi í stað þess að leggja á flótta. Að tala um fyrir friðsamlegri lausn deilumála skiptir máli. Að leggja hönd á plóg við innviðauppbyggingu fátækra ríkja dregur úr líkum á átökum og flóttamannastraumi. Það skiptir máli. Okkar framlag skiptir máli. ?
Við á Íslandi getum verið stolt af því hve vel hefur tekist að aðlaga flóttafólk inn í samfélag okkar, en það flóttafólk sem hefur sest hér að? um land allt hefur sannarlega auðgað og bætt? mannlífið, lært tungumálið, menntað sig og tekið þátt í atvinnulífinu. Að veita fólki hreiður, sem það getur í friði og?öryggi, vaxið og dafnað í, er ekki bara sjálfsögð aðstoð, heldur er það um leið mikil innspýting? í okkar eigið samfélag. Alltaf má þó betur gera. Tökum enn betur á móti þeim sem hingað leita og stóreflum íslenska þróuar- og mannúðaraðstoð svo fólk þurfi síður að leggja á flótta. Já, okkar framlag skiptir máli.?
Kristín S. Hjálmtýsdóttir
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Fjármögnun neyslurýma áskorun um alla Evrópu
Innanlandsstarf 25. júní 2025Þrátt fyrir að neyslurými fyrir vímuefni hafi fyllilega sannað gildi sitt gagnvart bæði einstaklingum og samfélögum glíma þau við sama vandamálið, hvort sem þau eru í Barcelona eða Borgartúni. Starfsfólk skaðaminnkunarverkefna Rauða krossins sótti upplýsandi ráðstefnu í Strassborg.

Nýtt forvarnarátak: Öryggi barna í sundi
Innanlandsstarf 23. júní 2025„Drukknun er algengari en flestir halda og stundum er því talað um hinn þögla faraldur,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum. Félagið hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi í samvinnu við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi.

Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru
Almennar fréttir 19. júní 2025„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, nýr formaður Rauða krossins á Íslandi.