Almennar fréttir

Héldu tombólu í Búðardal til styrktar Rauða krossinum

11. ágúst 2022

Þessir duglegu krakkar héldu tombólu í Búðardal á Búðardalsdögum 2. júlí síðastliðinn. Þau söfnuðu 9.000 krónum sem voru lagðar inn á söfnunina fyrir börn í Úkraínu.

Óðinn Ísaksson, Sonia Fjóla Mileris, og Jenný Dagbjört Stefánsdóttir með Sigurði Ólafssyni, formanni Rauða kross deildar Dala- og Reykhólahrepps.

Krakkarnir heita, frá vinstri; Óðinn Ísaksson, hann er 9 að verða 10 ára og frá Stykkishólmi, Sonia Fjóla Mileris, hún er 9 að verða 10 ára og frá Reykjavík og Jenný Dagbjört Stefánsdóttir, en hún 9 ára og frá Reykjavík. Á myndinni eru þau með Sigurði Ólafssyni, formanni Rauða kross deildar Dala- og Reykhólahrepps.

Við þökkum krökkunum kærlega fyrir sitt framlag í þágu mannúðarmála!