Fara á efnissvæði
Almennar fréttir

„Ómetanlegt“ fyrir samfélagið að eiga Rauða krossinn að

Adalfundur Rki 2026 4828

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra ávarpaði aðalfund Rauða krossins. Mynd: Davíð Þór

„Það er ómetanlegt fyrir stjórnvöld og samfélagið að eiga félag eins og Rauða krossinn að þegar áföll dynja yfir. Rauði krossinn er stór og mikilvægur hlekkur okkar í almannavörnum,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í ávarpi sínu á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem fram fór laugardaginn 9. maí.

„Stórt hlutverk Rauða krossins við stjórnvöld á sviði heilbrigðis- og neyðarvarna er okkur öllum afar verðmætt og ég vil þakka félaginu stuðning sinn við þau sem minnst mega sín í samfélaginu,“ sagði Alma enn fremur. Minntist hún m.a. á skaðaminnkandi þjónustu Rauða krossins, Frú Ragnheiði og neyslurýmið Ylju, í þessu sambandi. „Mér er verulega til efs að við værum komin á þann stað sem við erum í dag hvað varðar skaðaminnkandi þjónustu ef Rauði krossinn hefði ekki opnað augu stjórnvalda og almennings með þrotlausri vinnu og umræðu.“

Hjálparsíminn 1717. Vinaverkefni. Neyðarvarnir. Félagslegur stuðningur við flóttafólk. Aðstoð eftir afplánun. Skaðaminnkun og skyndihjálp. Allt eru þetta verkefni sem Rauði krossinn heldur úti með vel á þriðja þúsund sjálfboðaliða í broddi fylkingar. Um þau, fjármál félagsins og ýmislegt fleira er fjallað í nýútkominni ársskýrslu félagsins.

Adalfundur Rki 2026 4799

Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, flutti skýrslu stjórnar á aðalfundinum. Mynd: Davíð Þór

Stöndugt félag

„Félagið okkar er öflugt og stöndugt og er alltaf reiðubúið að laga sig að breyttum aðstæðum,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins, er hún fór yfir skýrslu stjórnar á aðalfundinum. „Við stöndum vörð um fólk þegar mest á reynir, bæði hér heima og víða um heim.“

Lagði hún ríka áherslu á burðarhlutverk sjálfboðaliða í öllu starfi félagsins. „Íbúar á Íslandi njóta þess að yfir tvö þúsund sjálfboðaliðar starfa undir merkjum Rauða krossins um land  allt  og vinna nærsamfélagi sínu gagn á ýmsan hátt,“ sagði hún. „Innan okkar raða starfar fólk sem er ekki einungis tilbúið til að gefa af tíma sínum, heldur með því að veita fólki sem þarf á stuðningi að halda nærveru, hlustun og öryggi.“

Benti hún á að viðnámsþróttur samfélaga hefjist heima fyrir og að varnir hverrar þjóðar fyrir hvers kyns vá byggi á þátttöku allra.  Í þeim anda legði Rauði krossinn nú aukna áherslu á verkefnið 3 dagar – Ertu klár? „Á tímum þegar allt getur breyst í heiminum, vopnuð átök hafist, flutningur á nauðsynjum stöðvast og innviðir raskast þá er nauðsynlegt að hver þjóð hugi að eigin áfallaþoli,“ sagði Sigríður. „Þarna höfum við hjá Rauða krossinum verk að vinna. Besta hjálpin er sú sem berst áður en áfallið dynur yfir.“

Adalfundur Rki 2026 5329

Tugir félaga og sjálfboðaliða í Rauða krossinum á Íslandi mættu til aðalfundarins sem haldinn var á Grand hóteli í Reykjavík. Mynd: Davíð Þór

Skjól fyrir flóttafólk

Á síðustu árum hefur umræða um flóttafólk og útlendinga orðið harðari, sagði Sigríður og minnti á að Rauði krossinn á Íslandi hefur stutt við bakið á flóttafólki í tæp 70 ár. „Við munum alltaf standa við bakið á þessum viðkvæma hópi sem neyðist til að yfirgefa heimkynni sín og leita á náðir fjarlægra þjóða,“ sagði hún. Þetta sé hópur sem er viðkvæmur fyrir misneytingu, svívirðingu og neikvæðu viðmóti. „Þessi hópur á skjól hjá okkur.“

 

Vegið að mennskunni

Sigríður vék orðum sínum einnig að alþjóðastarfi Rauða krossins á tímum útbreiddra átaka í heiminum. „Á síðustu árum höfum við meðal annars horft upp á gríðarlegar hörmungar á Gaza,“ sagði hún. „Hjálparstarfsfólk er fórnarlömb í átökum, þrátt fyrir að slíkt sé skýrt brot á alþjóðalögum. Stöðugt er vegið að mannúðarrétti, sáttmálum, gildum og jafnvel mennskunni sjálfri.“

Minnti hún í þessu sambandi á grunngildi hreyfingarinnar: Mannúð, óhlutdrægni og hlutleysi. „Við verðum að hafa hátt þegar þörf er á,“ sagði hún. „Ekki vegna þess að við viljum láta á okkur bera, heldur vegna þess að við vitum að sumt fólk getur ekki látið á sér bera þó að það gjarnan vildi.“

Síðustu ár hefur Rauði krossinn stutt við neyðaraðgerðir á Gaza með fjármagni og sendifulltrúum. „Tugir þúsunda hafa fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu með okkar aðstoð.“

Sigríður hvatti í erindi sínu sjálfboðaliða félagsins og starfsfólk til dáða. Rauði krossinn væri ekki „fasteignir og bankainnistæður“ heldur „fólk sem mætir, hlustar og hjálpar, hvar sem er á landinu“.

Að lokum sagði hún: „Við, sem störfum í nafni mannúðar og manngildis á Íslandi, þurfum að standa vörð um virðingu fyrir fólki og réttinn til mannsæmandi lífs hvar sem við getum og hvenær sem við getum. Innan okkar raða er ekki svigrúm fyrir hatur, fordóma og að alið sé á sundrungu. Þannig erum við ekki.“