Almennar fréttir
Saman fyrir Seyðisfjörð
08. janúar 2021
Saman fyrir Seyðisfjörð er nýtt samstarfsverkefni sem beitir sér fyrir uppbyggingu Seyðisfjarðar eftir þann harmleik sem átti sér stað fyrir jól. Rauði krossinn tekur við fjárframlögum.
Saman fyrir Seyðisfjörð
Saman fyrir Seyðisfjörð er nýtt samstarfsverkefni sem beitir sér fyrir uppbyggingu Seyðisfjarðar eftir þann harmleik sem átti sér stað fyrir jól.
Lítill hópur velunnara bæjarins sem tengjast hátíðunum LungA og List í ljósi auk listamannasetursins Heima er nú að skipuleggja styrktartónleika þar sem einvalalið íslensku tónlistarsenunnar kemur fram, auk fleiri uppákoma.
Styrktartónleikarnir munu fara fram sem streymi og allur ágóði mun renna til íbúa og samfélagsins á Seyðisfirði. Áætlaður útsendingartími er í lok mánaðarins og verður tilkynnt um nákvæma dagsetningu von bráðar.
Rauði krossinn heldur utan um fjársöfnunina og sér um að útdeila þeim fjármunum er safnast í nánu samstarfi við ýmsa aðila í samfélaginu.
Fylgist með hér:
Upplýsingar um fjáröflun:
- Sendið sms skilaboðin ´?HJALP?´ til ?1900? til að gefa 2900 krónur
- Millifærið frá íslenskum bankareikning:
Kt: 530269-2649
Reikningsupplýsingar: 0342-26-000012
- Millifærið frá erlendum bankareikning:
IBAN: IS460342260000125302692649
SWIFT: ESJAISRE
Saman fyrir Seyðisfjörð
Saman fyrir Seyðisfjörð is the title of a new collaborative project that works to rebuild the community of Seyðisfjörður after the tragedy that took place before Christmas and continues to affect the community of Seyðisfjörður.
A small group of benefactors of the town, connected to “LungA” and “?List í ljósi festivals, and the ?artists center Heima are organizing a charity concert later this month with live and pre-recorded performances from a selected group of Icelandic musicians and interviews with people affected by the disaster.
The fundraising concert will be streamed live and all proceeds will go to Seyðisfjörður. All funds raised will be distributed by the Red Cross in collaboration with the community in Seyðisfjörður. The estimated broadcast time is at the end of the month and the exact date will be announced soon.
Links to social media:
Please donate using the options below:
- Please donate: Text ?‘HJALP to ?1900? to donate 2,900 isk.
- Donate from an Icelandic bank:
Kt: 530269-2649
Acc: 0342-26-000012 - Donate from an International bank:
IBAN: IS460342260000125302692649
SWIFT: ESJAISRE
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Aldrei fleiri samtöl vegna sjálfsvígshugsana
Innanlandsstarf 22. janúar 2026„Þrátt fyrir að hafa reglulega yfir árið tekið saman tölur um fjölda sjálfsvígssamtala sem berast 1717, og vera meðvituð um að samtölin hafa verið að þyngjast og verða alvarlegri, þá er okkur brugðið yfir heildarsamantekt ársins,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum.
Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands
Almennar fréttir 21. janúar 2026„Þróunarsamvinna er grundvöllur friðar, stöðugleika, trausts og öryggis í heiminum,“ skrifa framkvæmdastjórar sex mannúðarfélaga. „Brýnt er að stefna Íslands í varnar- og öryggismálum taki mið af því og að litið verði á öfluga þróunarsamvinnu sem hluta af öryggishagsmunum Íslands.“
Úr einu hestafli í 180 á tæpri öld
Innanlandsstarf 06. janúar 2026Rauði krossinn hefur útvegað og rekið sjúkrabíla landsins allt frá árinu 1926. Á þeim tíma hefur hestöflunum sem notuð eru til sjúkraflutninga heldur betur fjölgað.