Almennar fréttir
Sameiginlegt ákall til stjórnvalda vegna Gaza
23. febrúar 2024
Við sem veitum mannúðarsamtökum á Íslandi forystu köllum eftir sterkari viðbrögðum íslenskra stjórnvalda vegna átakanna á Gaza.
![](/media/fwtpypbx/hl-35675664752.jpg?width=800)
Við sem veitum mannúðarsamtökum á Íslandi forystu köllum eftir sterkari viðbrögðum íslenskra stjórnvalda vegna átakanna á Gaza. Stjórnvöld verða að nýta allar mögulegar leiðir, rödd og krafta til að þrýsta á um varanlegt vopnahlé og virðingu fyrir mannréttindum og mannúðarlögum, sem eru fótum troðin fyrir allra augum
Stríðið á Gaza er stríð gegn börnum, enginn staður í heiminum er þeim jafn hættulegur. Næringarskortur blasir við, vatnsskortur er nær alger og farsóttir yfirvofandi. Samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum eiga almennir borgarar alltaf rétt á mannúðaraðstoð og vernd í vopnuðum átökum en öllum er ljóst að þessu er ekki fyrir að fara. Stríðandi fylkingar virða í engu mannréttindi íbúa svæðisins og líf þeirra mun aldrei verða samt aftur, lifi þeir af. Eyðileggingin á Gaza er alger og hvergi er skjól fyrir almenna borgara.
Þeim lögum og reglum sem gilda um mannúðaraðstoð á stríðstímum var komið á vegna skelfilegra átaka, þar sem almennir borgarar féllu í milljónatali. Aðgerðarleysi ríkja heims vegna átakanna á Gaza grefur undan þessum lögum og það skiptir ekki einungis máli fyrir fólkið í Palestínu, heldur fyrir heiminn allan. Spyrja verður um afleiðingar þessa, hvaða mörk setur alþjóðasamfélagið í átökum sem þessum og hvernig á að framfylgja þeim? Hvað gerist þegar almennir borgarar, þar með talin börn, eiga sér ekkert skjól og fá enga hjálp?
Við ítrekum óskir okkar um að íslensk stjórnvöld beiti sér af öllu afli á alþjóðavettvangi til að þrýsta á um:
- Varanlegt vopnahlé.
- Öruggan og óhindraðan flutning hjálpargagna inn á Gaza.
- Frjálsa för íbúa Gaza og öruggt aðgengi að hjálpargögnum og þjónustu.
- Uppbyggingu innviða sem tryggja hreint vatn, fráveitu, heilbrigðisþjónustu og næringu.
- Umsvifalausa og skilyrðislausa frelsun allra gísla á Gaza.
- Áframhaldandi fjárveitingar til hjálparstofnana á Gaza, þar með talið Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar (UNRWA).
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
Hjalti Skaale Glúmsson, framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar
Kristín Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi
Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women Ísland
Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit![](/media/zbofuqaq/20240722_110910.jpg?anchor=center&mode=crop&width=420&height=279&rnd=133664661628200000)
Heitasta ósk allra að ástandið skáni
Alþjóðastarf 26. júlí 2024Hólmfríður Garðarsdóttir kom nýlega heim eftir mjög krefjandi ferð sem sendifulltrúi til Gaza, þar sem hún starfaði á neyðarsjúkrahúsi Rauða krossins. Hólmfríður er þrautreyndur sendifulltrúi en upplifði einar verstu aðstæður ferils síns í ferðinni.
![](/media/mkzctcum/image-5.jpg?anchor=center&mode=crop&width=420&height=279&rnd=133650831076670000)
Héldu tombólu til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 10. júlí 2024Fjórir vinir héldu tombólu á Eiðistorgi til að safna fyrir Rauða krossinn.
![](/media/wqtbufcx/20240705_121315.jpg?anchor=center&mode=crop&width=420&height=279&rnd=133649120916170000)
Héldu tombólu til að styrkja Rauða krossinn
Almennar fréttir 08. júlí 2024Vinirnir Haukur Leó Styrmisson og Angelo Snær Klemensson Semey héldu tombólu til að safna fyrir Rauða krossinn á Íslandi.