Almennar fréttir
Seldu dót til að styrkja Rauða krossinn
01. júní 2023
Vinkonurnar Elín Sjöfn Vignis og Mattea Líf Kristinsdóttir söfnuðu fyrir Rauða krossinn og afhentu okkur afraksturinn í þarsíðustu viku.
Elín og Mattea tóku sig til og gengu í hús í Fossvoginum í Reykjavík og seldu dót á 100 krónur stykkið og náðu að safna 4400 krónum.
Við þökkum þeim kærlega fyrir framlag sitt í þágu mannúðar!
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Aðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum
Almennar fréttir 06. mars 2026Aðalfundur Suðurnesjadeildar Rauða krossins verður haldinn miðvikudaginn 11. mars kl. 18.00 á Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ.
Gísli Rafn lætur af störfum
Almennar fréttir 26. febrúar 2026Stjórn Rauða krossins á Íslandi og Gísli Rafn Ólafsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins.
Aðalfundur Rauða krossins við Eyjafjörð
Almennar fréttir 25. febrúar 2026Aðalfundur Eyjafjarðardeildar Rauða krossins verður haldinn fimmtudaginn 12. mars næstkomandi í húsnæði deildarinnar í Viðjulundi 2.